ÞÁTTUR STARFSFÓLKS LEIKSKÓLA í HLUTVERKALE I K BARNA Fjarvera starfsfólksins var augljóslega algengust á þeim stöðum þar sem hlut- verkaleikkrókurinn var í sérherbergjum þar sem enginn fullorðinn var til staðar (Tafla 1). Á þeim stöðum léku börnin sér oftast ein nema þegar þau báðu um aðstoð eða þau trufluðu aðra. Sums staðar leit starfsfólkið inn í herbergið við og við til að aðgæta hvort allt væri í lagi. Athuganir og skráning voru óalgengar, einungis á einum stað skráði starfsmaður hjá sér það sem börnin voru að gera. Þegar fullorðnir voru viðstaddir var algengast að þeir hefðu einhvers konar afskipti af leiknum. Afskipti voru skráð 29% af athuguðum tíma, oftast þar sem hlutverkaleiksvæðið var í sérherbergi og starfsmaður var við. Óformleg athugun átti sér stað í 18% af athuguðum tíma og reyndist einnig algengast þar sem hlut- verkaleiksvæðið var í sérherbergi og starfsmaður var til staðar. I 13% af skráðum tíma var starfsmaður viðstaddur en var að sinna einhverju öðru. Þetta var algengast þar sem hlutverkaleiksvæði var hluti af stærra herbergi (Tafla 1) Taflal Hegðun starfsfólks eftir fyrirkomulagi húsnæðis Hluti af stærra herbergi Fjöldi leikskóla 5 1) Fjarverandi 2,0% 2) Viðstaddur, gerir eitthvað annað 65,1% 3) Fylgist með óformlega 6,0% 4) Athugar og skráir 0% 5) Hefur afskipti 26,9% Sérherbergi með fullorðnum 14 8,87., 5,1% 354% 3,5% 47,2% Sérherbergi án fullorðinna 11 92,3% 0,2% 1,2% 0% 6,3% Mynd 2 sýnir tíðni mismunandi íhlutunaraðferða. Gefur hún til kynna að algengast var að starfsfólkið stæði utan við leikinn og þema hans (54%). Starfsfólkið stóð þá utan við leikinn og aðstoðaði börnin eða kom með athugasemdir óskyldar þema leiksins. Þetta var sú aðferð sem oft var notuð þegar starfsmaðurinn hafði ekki verið að fylgjast með leiknum og voru því athugasemdir ekki innan þema leiksins. Tafla 2 sýnir að öll afskipti af leiknum á þeim stöðum þar sem hlutverkaleikur- inn var í sérherbergi án viðveru fullorðinna var utan þema hans. Starfsmaðurinn kom þá inn í herbergið væri hávaði eða barn kom og bað um aðstoð. Afskipti utan þema leiksins voru einnig algeng í upphafi leiktímabils þegar starfsfólk aðstoðaði börnin með leikmuni og rýmið. Sama átti sér stað í lok leiktímabils þegar verið var að ganga frá. 40