ÞATTUR STARFSFOLKS LEIKSKOLA I HLUTVERKALEIK BARNA Tafla2 íhlutunaraðferðir eftir fyrirkomulagi húsnæðis Hluti af stærra Sérherbergi Sérherbergi herbergi með fullorðnum án fullorðinna Fjöldi leikskóla 5 1) Afskipti utan frá, óháð þema leiksins 23,1% 2) Afskipti utan frá, innan þema leiksins 0,9% 3) Afskipti innan frá (þátttaka) 76,0% 4) Leikþjálfun 0% 14 11 56,0% 98,4% 23,3% 1,6% 19,8% 0% 0,9% 0% verkaleiksvæðið var hluti af stærra herbergi. Þátttaka í leik barna var skráð um það bil 27% athugunartímans. Þátttaka í leiknum var flokkuð í fjóra flokka: 1) Samhliðaleikur - Starfsfólkið leikur sér samhliða börnunum án þess að taka beinlínis þátt í þeirra leik. Það er að gefa fyrirmynd. 2) Samleikur I - Starfmanninum er boðið að taka þátt í leiknum sem barnið skipuleggur og hefur stjórn á. 3) Samleikur II - Starfsmaðurinn stígur óboðinn inn í leikinn sem barnið skipuleggur og hefur stjórn á. 4) Samleikur III - Starfsmaðurinn tekur þátt í og hefur stjórn á leiknum. Mynd 3 sýnir að algengasta þátttaka í leik var þegar starfsmanninum var boðið að taka þátt í leiknum sem barnið skipuleggur og hefur srjórn á (Samleikur I), þ.e. í 52% þeirra tilvika sem starfsfólkið tók þátt í leiknum. Þetta átti sér stað í tíu af þess- um 30 leikskólum. Eftirfarandi dæmi átti sér stað í leikskóla þar sem hlutverkaleik- svæði var hluti af stærra herbergi: Fjögur börn voru að leik á hlutverkaleiksvæði sem var hluti af stærra herbergi. Starfsmaður sat við borð með nokkrum börnum sem voru að leika sér að perlum og kubbum. Telpa spurði starfsmanninn hvort hann vildi kaffi. Hann þáði það. Þá lagði önnur stúlka til að borðið þar sem starfsmaðurinn sat væri kaffihús. Síðan náðu þær íbollapör úr hlutverkaleikskróknum og buðu upp á hressingu. Starfsmað- urinn þáði það sem að honum var rétt og spurði hvort þær ættu mjólk í kaffið og hagaði sér eins og hann væri á kaffihúsi, en lét börnin leiða leikinn. Samleikur III, þegar starfsmaðurinn tekur þátt og hefur srjórn á leiknum, var næst algengasta leikíhlutunin. Þetta átti sér stað í 31% tilvika. Samleikur III átti sér stað í fjórum af leikskólunum 30. Dæmið hér að neðan er af þessari tegund leikíhlutunar þar sem starfsmaður hefur stjórn á leiknum og börnin fylgja honum eftir. 42