ÞATTUR STARFSFOLKS LEIKSKOLA I HLUTVERKALEIK BARNA Tafla 6 Svör varðandi áhrif fullorðinna á hlutverkaleikinn Áhrif Uppeldismenntað starfsfólk Ófaglært starfsfólk 186 Alls 177 363 Ekki áhrif 44 91 135 Alls 221 277 498 Um þriðjungur þátttakenda sem töldu að starfsfólkið ætti að hafa áhrif á leikinn nefndi að fullorðnir ættu að hafa áhrif með þátttöku þegar þörf væri á, um 13% nefndu að þeir ættu að hafa áhrif á leikinn þegar nauðsynlegt væri að aðstoða börn- in við deilumál og ágreining. Um það bil 15% nefndu að fullorðnir ættu að beina leiknum á rétta braut, og u.þ.b. 11% nefndu að starfsfólk ætti að hafa áhrif með því að koma leiknum af stað og leiðbeina. Þegar þátttakendur voru spurðir hvers vegna þeir teldu að starfsfólk ætti að hafa áhrif sögðu þeir meðal annars: Til að kenna börnunum eða gefa þeim fyrirmæli (16,8%), að veita aðstoð svo leikurinn leystist ekki upp (12,2%), og sjá til þess að allir væru virkir (10,6%). Mynd 4 Undirbúningur hlutverkaleiks Fer eftir aldri 2% Annað 8% Aðstoða með leikmuni 41 % Byrja í hlutverki 10% Fleiri en ein leið 12% Stinga upp á leikjum 27% 46