DORA S. BJARNASON TILLAGA AÐ HEIMILI BENEDIKTS H. BJARNASONAR Benedikt6 Hann er að ljúka framhaldsskóla og er fæddur í desember 1980. Hann er mannblend- inn, glaðsinna og áhugasamur um lífið og tilveruna. Hann hefur ferðast víða um heim, numið í skólum í þremur heimsálfum og fjórum þjóðlöndum og reynt margt. Hann vinnur nú með skólanum, sem sjálfboðaliði, tvo dagparta í viku. Hann lýkur námi við Iðnskólann í Reykjavík vorið 2000 og vonast til að komast í framhaldsnám ril Danmerk- ur skólaárið 2000-2001. Hann mun flytjast að heiman á næsta ári. Benedikt er fjöl- fatlaður og flogaveikur. Hann tjáir sig með bendingum. Hann notar hjólastól til lengri ferða og sýnt er að hann verður kominn í stólinn að mesru innan fárra ára. Hann þarf aðstoð og stuðning allan sólarhringinn og getur aldrei verið einn. Hann á og rekur bíl. Benedikt kaupir íbúð haustið 20007 Fjármál og kostnaður Benedikt á eina miljón króna og fer í greiðslumat. Miðað við tekjumörk 1.682.000 kr. (hámark) og eignamörk 1.900.000 kr. (hámark) getur hann keypt sér íbúð sem kost- ar 7.955.000 kr. Hann fær lán (húsbréf 5.170.750 og viðbótarlán 1.784.250) til 40 ára og leggur fram sína miljón. Heildargreiðslubyrði á mánuði yrði 33.977 kr. eða tals- vert lægri upphæð en húsaleiga á almennum markaði fyrir litla leiguíbúð. Ef miðað er við að hann hafi um 80.000 kr. í mánaðarlaun (örorka ) mun hann ráða við þetta þótt hann búi við allt of þröngan kost. Hann hefði 28.000 kr. á mánuði í framfærslu og 18.000 kr. til reksturs bifreiðar. (Ef tveir kaupa íbúð saman verður róðurinn léttari.) Hvað sem öðru líður þurfa fatlaðir nú að greiða húsaleigu af örorku sinni, og hvers vegna ætti þeim þá ekki að takast að greiða sjálfum sér sambærilega húsaleigu? Þar til almenn örorka verður leiðrétt mun fjölskylda Benedikts leggja eitthvert fé með honum eða leita sérlegra styrkja. Búnaður Heimili Benedikts verður sniðið að þörfum hans og áhugamálum. Snyrting, eldhús, stofa, garður og allur umbúnaður þarf að vera þannig úr garði gerður að hann komist um og geti sjálfur (eða með aðstoð) sinnt athöfnum daglegs lífs á heimili sínu. í þessu dæmi þyrfti einkum að huga að því að hjólastóll komist um íbúðina, að baðherbergi sé búið sturtu, að borð í eldhúsi séu hækkanleg og eldhúsið öruggt. Benedikt þarf íbúð eða lítið raðhús þar sem eru tvö svefnherbergi hið minnsta, snyrting með sturtu og salerni, baðherbergi með sturtu og salerni, eldhús, stofa og geymsla og þvottaaðstaða. Samkvæmt skýrslu nefndar um biðlista eftir búsetu og annarri þjónustu hjá svæðisskrifstofum um málefni fatlaðra frá desember 1998, þá flokkaðist Benedikt í flokk sjö. Samkvæmt því má ætla að kostnaður vegna búsetu hans og annarrar þjónustu, svo sem þetta er skilgreint í skýrslunni, væri á bilinu 4,5-5 milljónir króna á verðgildi krónunnar 1998. Sambærileg tala frá Danmörku frá 1999 er á bilinu 600.000-800.000 danskar krónur samkvæmt upplýsingum frá dönsku foreldrasamtökunum (Frank Ulmer Jörgensen frá Landsforeningen LEV í sept. 1999). Tölurnar miðast við upplýsingar um verðlag frá hausti 1999. 61