HEIMA ER BEST VIÐAUKII Starfslýsing fyrir umboðsmann Ábyrgð Umboðsmaður ber ábyrgð á því að aðstoða vinnuveitanda sinn við að skipuleggja, stýra og samhæfa nauðsynlega persónulega þjónustu. Umboðsmaður veitir upplýsingar, held- ur við og eflir persónuleg og önnur félagsleg tengsl vinnuveitanda síns, og stuðlar að því að hann geti sjálfur skipulagt og stýrt persónulegri þjónustu sinni og aðstoðarfólki. Um- boðsmanni ber skylda til að kynna sér þarfir, óskir og smekk, gildi og menningu vinnu- veitanda síns og fjölskyldu hans. Umboðsmaður er ábyrgur gagnvart vinnuveitanda sínum og stuðningshópi hans en starfsmaður félagsskrifstofu viðkomandi sveitarfélags veitir honum stuðning og aðhald. Umboðsmaður skuldbindur sig til að hætta ekki störf- um að öðru jöfnu fyrr en hann hefur fundið eftirmann sinn og kennt honum starfið. Skyldur Skyldur umboðsmanns fela meðal annars í sér, en einskorðast ekki við eftirfarandi: - að tryggja að öll þjónusta taki mið af markmiðum og því hver viðkom- andi vinnuveitandi er" - að aðstoða vinnuveitanda sinn við að gera áætlanir, stýra og samhæfa persónulega þjónustu - að aðstoða vinnuveitanda sinn við að leita að, ráða, kenna og srjórna að- stoðarfólki - að afla upplýsínga um aðstöðu, gögn og gæði í samfélaginu sem vinnu- veitandinn kann að vilja nýta og stuðla að því að hann komist um og geti nýtt sér slíkt 12 - að samhæfa framkvæmd á ISP (individual support plan) og áætlun um athafnir/aðgerðir - að styðja við samskipti og upplýsingaflæði milli fólks í stuðningsneti vinnu- veitanda síns - að fylgja vinnuveitanda sínum og vera fulltrúi hans og málsvari við ýmsar formlegar aðstæður svo sem á fundum, opinberum samkomum eftir því sem þurfa þykir - að stuðla að því að lífsgæði vinnuveitandans miðist stöðugt við að tryggja honum viðeigandi lífsstíl og bætt líf Hæfni -forsendur Umboðsmaður þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði: - hafa a.m.k. eins árs reynslu af því að vinna með þroskaheftu/fjölfötluðu fólki. - hafa eins árs reynslu af því að vinna í félagsþjónustukerfinu, mennta- kerfinu eða við stjórnunarstörf. 12 ÁætJun sem stuðningshópur leggur drög að og snýst um skipulag á stuðningi við líf fötluðu manneskjunnar og er byggt á upplýsingum um hver hún eða hann er. Umboösmaður útfærir slíka áætlun í samráði við einn eða fleiri ur stuðningshópnum og sér síðan um að samhæfa framkvæmd. 68