GUÐRUN KRISTINSDOTTIR ÓLAFUR H. JÓHANNSSON ARANGUR SEM ERFIÐI? Rannsókn á áhrifum endurmenntunarnámskeiða á störf kennara Hér er greint frá niðurstöðum athugunar sem bar yfirskriftina Hvernig nýtast endur- menntunarnámskeiðgrunnskólakennunun? í rannsókninni var leitast við að athuga nokk- uð ítarlega áhriffárra námskeiða fremur en aðfá heildaryfirlit. Þessi nálgun er talsvertfrá- brugðin því mati sem fram hcfur farið á námskeiðum endurmenntunardeildar Kennara- háskóla íslands hingað til því að hér er leitast við að lýsa áhrifum endurmenntunar á störf kennara' Endurmenntun kennara er gefirvn æ meiri gaumur enda mikilvægt að hún sé í sífelldri endurskoðun og þróun. Nýlega hafa orðið talsverðar skipulagsbreytingar í þessum efnum í kjölfar yfirfærslu rekstrar grunnskóla til sveitarfélaga. Forræði yfir endurmenntun færist nú í auknum mæli frá menntastofnunum kennara og kennur- um sjálfum til skólastjórnenda og sveitarfélaga. Ekki er Ijóst hver áhrif þessara kerfisbreytinga verða en vera kann að nokkuð dragi úr beinu frumkvæði og val- frelsi einstakra kennara sem hingað til hefur verið verulegt. Námskeið endurmenntunardeildar Kennaraháskólans hafa verið metin með skipulegum hætti um langt árabil. Hinir fjölmörgu kennarar sem sótt hafa nám- skeið þekkja vel til þessa; matið fór fram strax að námskeiði loknu þannig að þátt- takendur fylltu út matsblöð og skiluðu áður en þeir héldu heimleiðis. Á þennan hátt fékkst gott yfirlit yfir mat þátttakenda við námskeiðslok og nokkur saman- burður milli námskeiða. Matið nýttist vel bæði umsjónarkennurum námskeiða og Kennaraháskólanum við skipulagningu endurmenntunar. Þessi aðferð gaf þó enga innsýn í áhrif námskeiðanna á starf þátttakenda að þeim loknum. Um það atriði hefur lítið verið vitað sem er þó grundvallaratriði. Leitað var svara við eftirfarandi spurningum: Hafa endurmenntunarnámskeiðin áhrif á starf grunnskólakennara? Ef svo er, um hvers konar áhrif er að ræða? Vara þau um skamman eða langan tíma? Lúta áhrifin fyrst og fremst að viðhorfum, kennsluað- ferðum, auknu áræði til nýjunga, breytinga á starfsanda? Er unnt að rekja breytingar í starfi beint til áhrifa frá námskeiðunum? Er munur á áhrifum eftir námskeiðsformi (sumarnámskeið, námskeið á starfstíma skóla)? Höfundar þakka Rannsóknarsjóði Kennaraháskóla íslands fjárstyrk og aðstoð við öflun og úrvinnslu gagna. Sérstakar þakkir fá Guðný H. Gunnarsdóttir og Gunnhildur Óskarsdóttir fyrir símaviðtölin og Fjölnir Ás- björnsson fyrir úrvinnslu eigindlegra gagna. Uppeldi og menntun - Tímarit Kennaraháskóla íslands 8. árg. 1999 "1