GUÐRUN KRISTINSDOTTIR, OLAFUR H. JOHANNSSON Að spyrja réttu" spurninganna, grundvallarlögmál í heimspeki menntunar1 Námskeiðið var ætlað bæði leikskóla- og grunnskólakennurum. Það stóð alla haust- önn og var skipulag þannig að þátttakendur hittust fimm sinnum, fjórar stundir í senn. Skipulag var með málstofusniði og byggði því mjög á virkni þátttakenda. Námskeiðið sóttu 18 þátttakendur. I lýsingu segir: Markmið námskeiðsins er að taka til meðferðar rit nokkurra hugsuða erfjallað hafa um menntun í víðum skilningi þess hugtaks. Þetta námskeið er hugsað fyrir þá sem hafa lítiðfengist við lestur á heimspekilegum verkum en hafa áhuga á að dýpka skilning sinn á þessu sviði. Að kenna þjóðfélagsþegnum næstu aldar, heildstæð kennsla og skapandi starf Námskeiðið var ætlað kennurum 5.-9. bekkjar og stóð fimm daga. Það var haldið að Varmalandi í Borgarfirði þar sem þátttakendur bjuggu meðan á námskeiðinu stóð. Námskeiðið sóttu 23 þátttakendur. Að námskeiði loknu áttu þeir að reyna hug- myndir í verki og skila um það greinargerð síðar á haustönn. I námskeiðslýsingu stóð að námskeiðið væri ætlað þeim sem hafa áhuga á að brjóta til mergjar hugmyndir um heildstæða kennslu, samþættingu námsgreina, fjölbreyttar kennsluaðferðir og skapandi starf Nýsköpun í grunnskóla Námskeiðið var einkum ætlað kennurum 9-12 ára barna. Það stóð í þrjá daga í Reykjavík. Þátttakendur voru 17. I lýsingu segir að nýsköpunarverkefni sé ...ætlað að efla frumkvæði barna og sköpunargáfu með því að kenna þcim að vinna að hugmyndum sínum oggera þau virkari ímótun umhverfis síns. Stærðfræðinám í upplýsingasamfélagi nútímans Námskeiðið var ætlað kennurum er kenna stærðfræði og stóð í 12 daga. Það hófst með þriggja daga lotu og í framhaldi af henni voru samskipti á tölvuneti. Námskeið- inu lauk með þriggja daga vinnulotu. Þátttakendur voru 3-5 frá hverjum skóla, og var annar skólastjórnenda meðal þeirra. Alls voru 13 þátttakendur frá þremur skól- um. I lýsingu segir: Áhrif tækniþróunar síðustu áratuga á notkun stærðfræði í lífi og starfi eru mikil og margslungin... Stærðfræðilegt læsi og kunnátta í að setja fram á stærðfræðilegan hátt skiptir síauknu máli. Stefnt er að því að allir þátttökuskólar geti gert afrakstur vinnunnar sýnilegan í skólanámskrá og skrifum tilforeldra. Gagnaöflun var með þrennum hætti. Væntingar þátttakenda voru kannaðar fyrir- fram með nafnlausum spurningalista. Skoðuð voru matsblöð endurmenntunardeild- ar, sem lögð eru fram í lok námskeiðs. Símaviðtöl við þátttakendur fóru fram að nokkrum tíma liðnum. Með þessum hætti var unnt að ná fram fjölbreytilegum gögn- um og skoða áhrif námskeiðanna bæði tölulega og eigindlega. 1 ( texta hér á eftir verður til styttingar vísað til upphafs á heiti hvers námskeiðs, sem hér segir: Að spyrja, Að kenna, Nýsköpun, Stærðfræðinám. 93