GUÐRUN KRISTINSDOTTIR, OLAFUR H. JOHANNSSON - Auka fjölbreytni ívenjulegri bekkjarkennslu (Nýsköpun). - Aukinfjölbreytni í náminu,fleiri nýjungar {Stærðfræðinám). - Veiti mér nýja sýn og geri mér auðveldara að nýta samræður markvisst í kennslu (Aðspyrja). Þátitakendur voru beðnir að tilgreina hvaða ávinnings þeir einkum væntu af nám- skeiðunum, með því að merkja við tiltekin atriði sem voru þau sömu og á matsblaði endurmenntunardeildar sem fyllt er út við námskeiðslok. Á matsblaði var unnt að merkja við eftirfarandi kosti: - Kynnast nýjum hugmyndum - Öðlast aukna færni á tilteknum sviðum - Deila reynslu með öðrum - Auka þekkingu á viðfangsefninu - Breyta til í hversdagsleikanum - Auka þor til að reyna nýjungar í kennslu - Vekja til umhugsunar - Annað í svörunum vega eftirtaldir þættir þyngst: - Kynnast nýjum hugmyndum - Öðlast aukna færni á tilteknum sviðum - Auka þekkingu á viðfangsefninu Langalgengast var fyrsta atriðið Kynnast nýjum hugmyndum"; 24 af 50 settu það í fyrsta sæti og ellefu í annað sætí. Öðlast aukna færni" settu sjö í fyrsta sæti og tíu í annað sæti. Auka þekkingu á viðfangsefninu" settu níu í fyrsta sæti og átta í annað. Þess skal getið að enginn þátttakenda á námskeiðinu Að spyrja réttu spurning- anna taldi aukna færni" líklegan ávinning og er það í samræmi við megintilgang námskeiðsins, eins og því var lýst í kennsluskrá. Væntingar þátttakenda hafa ekki verið kannaðar með skipulegum hætti á þennan hátt áður og því ekkert efni til samanburðar. Hins vegar má bera þessar niðurstöður saman við svör þátttakenda um álit og áhrif að námskeiðum loknum. MAT ÞÁTTTAKENDA AÐ NÁMSKEIÐILOKNU Eins og áður er getið eru þátttakendur við lok hvers námskeiðs á vegum endur- menntunardeildar beðnir að svara nafnlausri könnun þar sem þeir leggja mat á námskeiðið. Á vegum deildarinnar var unnið úr matsblöðum frá tveimur þessara námskeiða, Að kenna þjóðfélagsþegnum og Nýsköpun. í heild eru þátttakendur mjög ánægðir að námskeiðum loknum. Þeir telja að þau hafi verið vel skipulögð og leiðbeinendur hafi haft mikið fram að færa. Þeir voru, eins og áður segir, beðnir að tilgreina hvaða ávinning þeir teldu sig einkum hafa haft af námskeiðunum með því að merkja við tiltekin atriði. Þrír þættir vega þyngst og þyngra á þessum námskeiðum en almennt gerist og tveir þeirra skera sig úr, eins og sjá má í Töflu 1. Ljóst er því að á námskeiðunum hefur tekist að vekja og glæða áhuga á nýjum hugmyndum og jafnframt að kynna þátttakendum verklag til að nota í eigin kennslu. 95