ARANGUR SEM ERFIÐI? Taflal Mat þátttakenda á ávinningi af námskeiðunum Nýsköpun og Að kenna samanborið við heildarniðurstöður námskeiða 1995. Tölurnar eru hlutf allstölur Nýsköpun Heild 1995 Aðkenna Heild 1995 N=14 N=868 N=22 N=868 Að kynnast nýjum hugmyndum Að vekja til umhugsunar Að auka þor 100,0 81,1 90,9 81,1 78,6 74,9 77,3 74,9 92,8 51,7 90,9 51,7 Þegar borin er saman röð þátta í mati kennara fyrir og eftir námskeiðið sést að sami þáttur Kynnast nýjum hugmyndum" er í báðum tilvikum í fyrsta sæti. Atriðin Öðlast aukna færni" og Auka þekkingu á viðfangsefninu" vega að vísu þungt áður en námskeiðin hefjast en önnur atriði hafa færst ofar í huga þátttakenda að námskeiðum loknum, þ.e.a.s. Að vekja til umhugsunar" og Að auka þor". Leið- beinendum virðist því hafa tekist að höfða til áhuga þátttakenda, þeir hafa komist yfir kynningarþröskuldinn" og hjálpað þeim að íhuga eigin reynslu og takast á við viðfangsefnin. SIMAVIÐTOL Símaviðtöl voru hálfskipulögð sem merkir að spyrjandi hefur til hliðsjónar all ítar- lega skrá yfir þau atriði sem hann vill fá svör við, en röð þeirra ræðst að nokkru af framvindu viðtalsins. Þessi gerð viðtala hentar betur til að fá fram nokkuð ítarleg svör í samræðuformi en ef stuðst er við fastmótaðar spurningar (Drever 1995:13). Meðallengd viðtala var um 15-20 mínútur. Eftirfarandi meginatriði voru lögð til grundvallar hverju viðtali: - Námskeiðið sjálft, áhugaverðustu, minnisstæðustu atriðin. - Hagnýting, hvað gekk vel og hvað ekki, helstu hindranir. - Framtíðin, verður um frekari úrvinnslu á efni námskeiðsins að ræða? Viðtölin tóku reyndir kennarar sem hafa verulega reynslu af því að leiðbeina kenn- araefnum og starfandi kennurum. Viðtölin voru vélrituð orðrétt til að tryggja að öll svör yrðu skoðuð og gaumgæfð. 96