GUÐRUN KRISTINSDOTTIR, OLAFUR H. JOHANNSSON URVINNSLA VIÐTALA Eftir að viðtölin höfðu verið skoðuð var ákveðið að flokka svörin á eftirfarandi hátt: - Áhugaverðustu og minnisstæðustu atriðin - Hagnýting - Hindranir Hér á eftir verður gerð grein fyrir helstu atriðum er fram komu í tveimur fyrstu flokkunum og fjallað um hvert námskeið fyrir sig, en um hindranir er fjallað í heild. Fyrst verður lýst svörum þátttakenda um hvað þeim þótti áhugaverðast og minnis- stæðast við námskeiðin. Þá er sagt frá niðurstöðum svara um hagnýtt gildi og loks er fjallað stuttlega um framtíðaráætlanir þar sem það á við. Að kenna þjóðfélagsþegnum næstu aldar. Heildstæð kennsla og skapandi starf Áhugaverðast og minnisstæðast Á námskeiðinu voru kynnt ný og fjölbreytt vinnubrögð sem vöktu áhuga. Nám- skeiðið var þannig byggt upp að þátttakendur prófuðu vinnubrögðin sjálfir á nám- skeiðinu. Þetta form var einn af kostum námskeiðsins, sem hvatti til að prófa nýja hluti í kennslu og einnig það að þurfa að mæta aftur að hausti og kynna tilraunir með vinnubrögð sem kennd voru á námskeiðinu og heyra af reynslu annarra. Það var mikil hvatning að fá kynningu á nýjum hugmyndum og öðlast þor til að nýta þær. Þannig fengu þátttakendur hugmyndir og heyrðu um hvað aðrir voru að gera. Margt gott kom fram í þeirri kynningu. Sumar hugmyndir voru ekki nýjar en nýtt og gamalt fléttaðist vel saman. Gott samræmi var milli efnis námskeiðsins og vinnubragða sem beitt var. Leiðbeinendur á námskeiðinu virtust mjög vel undirbúnir. Þeir miðluðu á áhugaverðan og hvetjandi hátt af margra ára reynslu sinni af þeim vinnubrögðum sem kennd voru. Þeir virtust hafa mikla trú á vinnulaginu og höfðu gengið í gegn- um súrt og sætt við að þróa það. Sérstaklega minnisstætt er þátttakanda hve stjórn- endur voru jákvæðir. Það var hægt að koma fram með óöryggi", segir einn þeirra og vel tekið á því, má skilja af samhenginu. Leikræn tjáning er nefnd af nokkrum sem mjög jákvæður þáttur og hvernig hún nýttist til að skapa nýjar aðstæður og laða fram hughrif á tiltölulega einfaldan hátt. Einn þátttakandi nefnir slökun sem jákvætt atriði á námskeiðinu. Námskeiðið var mjög skemmtilegt og góður starfsandi skapaðist. Þetta var alveg frábært námskeið" segja sumir og óska eftir framhaldi. Einn segir að leiðbein- endur hafi verið alveg draumur í dós og ég vil bara fá meira", þetta hafi verið alveg einstaklega vel gert hjá þeim. Skemmtilegt og gagnlegt" eru orð sem einn viðmælandi velur. Annars staðar kemur svipað fram: Þetta var bara mjög vel heppnað að öllu leyti og mætti væntingunum semsagt fyllilega. Og svona til þess að ... ég sem sagt vildi vinna með samþættingu og svoleiðis en hafði ekki kjarkinn til að byrja. Fannst svo mörg ljón í veginum. Þetta námskeið hjálpaði mér alveg af stað." Staðsetningin á Varmalandi reyndist mög vel. Nokkrir þátttakenda taka sér- staklega fram að þeir vilji að námskeiðshaldi utanbæjar verði fram haldið. Mikill 97