ÁRANGUR SEM ERFIÐI? tími gefist til að ræða málin og betri starfsandi myndist. Þó að námskeið í Reykjavík séu líka góð sé þetta form hentugt þegar verið sé að þróa ýmis vinnubrögð. Menn geti ekki hlaupið hver í sína áttina eins og gerist óhjákvæmilega í bænum. Þó að sumt í vinnubrögðum væri ekki nýtt af nálinni var stigið feti framar þarna en ýmsir höfðu prófað áður og það gaf námskeiðinu mikið gildi. Þannig var margt nýstárlegt. Námskeiðið var þroskandi og krefjandi á jákvæðan hátt", segir einn viðmælandinn. Mikil ánægja var með kennsluna, þátttakendahópinn, vinnuanda, hvatningu til nýbreytni í starfi og staðsetninguna sem gaf mikið tækifæri til samræðna og sam- starfs eins og skín út úr svörum um þetta námskeið. Hagnýting Allir þátttakendur voru beðnir að svara því með hvaða hætti þeir teldu sig hafa getað hagnýtt efni námskeiðsins. Algengast er að kennarar telja að námskeiðið hafi með einhverjum hætti haft áhrif á viðhorf þeirra. Þeir sjái nýja möguleika, námskeiðið hafi eiginlega opnað gluggann að nýjum leiðum" eins og einn þeirra lýsir slíkum áhrifum. Aðrir segjast halda vak- andi ýmsum hugmyndum sem þeir fengu en telja erfitt að koma orðum að áhrifunum sem virðast þá mjög óbein. Þetta hefur hjálpað manni rosalega af stað að fá hug- myndir og vinna út frá hlutunum. Það er eitthvað svo erfitt að tala um þetta." Aðrir töldu að námskeiðið hefði styrkt þá í vinnubrögðum sem þeir hefðu beitt. En þetta var náttúrlega til þess að styrkja mann frekar í því að maður væri að gera rétt." Einn viðmælenda benti á að mikilvægt væri að fleiri en einn kennari kæmi úr hverjum skóla svo þeir gætu stutt hver annan þegar heim er komið. Þá er þess getið að það að skoða tilteknar uppserningar í kennslu og fara í gegnum ákveðið ferli, t.d. í leikrænni tjáningu hafi hjálpað þeim að reyna sjálf kennslu í sama dúr. Einnig var rætt um að koma upp sameiginlegum hugmyndabanka og geta miðlað reynslu af því sem vel gekk og miður. Við erum búin að hafa samband við nokkra sem voru á námskeiðinu og skiptast á. Við héldum áfram vinnunni langt fram á kvöld svo hvetjandi var þetta." I tveimur tilvikum höfðu þátttakendur ekki hafist handa en voru búnir að ákveða verkefni síðar á skólaárinu og gerðu fastlega ráð fyrir að þau kæmust í fram- kvæmd. Nýsköpun í grunnskóla Áhugaverðast og minnisstæðast Áberandi er að þátttakendur telja að námskeiðið hafi falið í sér nýjungar í kennslu- háttum. Einn segir að þetta hafi verið nýjar leiðir og öðruvísi komið að nemandan- um og námsefninu. Fleiri taka undir það, dæmi: Nú mér fannst það mjög mark- vert allt námskeiðið. Að læra að hugsa upp á nýtt, bæði sjálfur og hvernig maður getur útfært þessa nýsköpun í skólastarfinu. Það var mjög praktískt" námskeið að mörgu leyti því að við smíðuðum okkur tæki þarna til að skera frauðplast til að útfæra hugmyndir með nemendum." Ekki eru allir viðmælendur svo afgerandi í svörum sínum. Þátttakandi segir að 98