ÁRANGUR SEM ERFIÐI? Að spyrja réttu" spurninganna. Grundvallarvandamál í heimspeki menntunar Áhugaverðast og minnisstæðast Efnistökin á þessu námskeiði voru talin áhugaverð. Þau fólust í lestri bóka og að þátttakendur gerðu grein fyrir efni ákveðinna kafla. Þó að efnið væri torlesnara en margt annað sem lýtur beint að kennslu og erfitt reyndist stundum að ræða efnið geðjaðist þátttakendum vel að vinnulaginu. Það hvatti til annars konar lestrar en fyrr, til íhugunar og nýrra hátta við lestur og hugsun. Þar sem efnið var þess eðlis að sérstaka hvatningu þurfti til lestrar spratt af þessu vinna sem annars hefði vart átt sér stað að mati sumra. Lesturinn varð tafsamari en skemmtilesning en engu að síður mjög áhugaverður og ný reynsla. Þátttakendur eru nokkuð samdóma um að þetta hafi ekki breytt miklu í kennsluháttum, en engu að síður verið gagnlegt, gott og skemmtilegt. Þó að sumum þátttakendum fyndist að stirðlega gengi hjá hópnum að spyrja réttu" spurninganna" og umfjöllun þeirra væri því fremur laus í reipunum tók leiðbeinandinn vel á því og ræddi efnið. Þannig var hann góð fyrirmynd og varpaði áhugaverðu Ijósi á efnið með eigin umfjöllun. Umræðustundirnar og einstaka verk- efni nemenda vöktu áhuga og komu huganum á flug eins og einn viðmælenda orð- ar það. Annar lýsir því hvernig mönnum tókst að tengja efnið við eigin raunveru- leika: Mér fannst gaman að fá þessi viðbrögð frá mörgu fólki í þessari starfsgrein, gagnvart bókmenntum og lífsreynslusögur sem fólk gat tengt í kringum þetta." Greinilegt er að þátttakendum fannst þetta námskeið áhugaverð nýbreytni í endurmenntun grunnskólakennara, þar sem heimspekileg umfjöllun hefur verið af fremur skornum skammti. Sumir voru að lesa heimspekirit í fyrsta sinn. Einn þátttak- enda tjáir sig svona um ánægju sína: Mér fannst námskeiðið alveg sérlega skemmti- legt. Það hrærði upp í mér að takast á við eitthvað nýtt. Mér finnst þetta mjög heillandi fag fyrir skólafólk sérstaklega. Ég var rosalega ánægð með þetta námskeið. Ég sakna þess að hafa ekki fengið eitthvað um þetta í námi mínu í Kennaraháskólanum." Fleiri þátttakendur koma að hinu sama, hin heimspekilega umfjöllun þótti ný- stárlegt og áhugavert viðfangsefni og einn þátttakandi segir: Mér fannst þetta svo uppbyggilegt og menntandi fyrir sjálfa mig." Þá kemur fram hjá sumum að námskeiðið hafi hvatt til lestrar um heimspekileg efni eftir að því lauk. Einn þátttakenda nefnir að eini gallinn hafi verið hve stór hóp- urinn var, betra hefði verið að ræða saman í minni hópum. Hagnýting Margir viðmælenda taka fram að þetta námskeið hafi haft áhrif á hugsunarhátt þeirra og sjónarhorn, eins og megintilgangurinn var. Maður veltír hlutunum fyrir sér á annan hátt en maður hefur gert" og annar segir námskeiðið hafa ýtt undir nánari íhugun á ýmsu". Kennarar eiga erfitt með að rekja bein áhrif á kennsluna, einn segir þó ...ég spyr ekki eins beinna spurninga og gef krökkunum meira tækifæri tíl að leita að lausnum". Einn viðmælenda getur þess að lesefnið hafi verið áhugavert og vakið tíl umhugsunar. Annar segir að námskeiðið hafi verið uppbyggilegt og menntandi fyrir sig og einn segist vera gagnrýnni á hvernig hann setji efni fram í kennslu. 200