FRUMKVÖÐLAR OG ANNAÐ FÓLK í ÓLGUSJÓ UPPLÝSINGA. Nú á okkar síðustu póstmódernísku tímum má víða lesa gagnrýni á þurra framsetningu vísindagreina í skýrsluformi um leið og pósitívísk viðhorf til hlut- lægni vísindanna eru gagnrýnd. Því er þá stundum haldið fram að fræðimaðurinn nái oft að túlka veruleikann miklu betur ef hann beitir fyrir sig líkingamáli eins og skáldin gera. Það er í þessum anda sem ég geri tilraun til að túlka niðurstöður rann- sóknar minnar með líkingunni um landkönnuðinn á skólaskipinu. LANDKÖNNUÐURINN Sá sem ætlar sér að kanna ný lönd verður að búa yfir eða þróa með sér ákveðna eigínleíka. Hann verður að hafa áhuga á að sjá og uppgötva eitthvað nýtt og óþekkt; vera hrifnæmur. Til þess verður hann að vera tilbúinn til að leggja á sig ferðalög út í óvissuna með tilheyrandi erfiðleikum. Hann verður að hafa góða skipulagsgáfu ásamt frumkvæði og skapgerð ákafamanns sem býr yfir hæfilegri þrjósku og lætur helst ekkert hindra sig í að ná settu marki. Þegar hann hefur náð því nýtur hann þess að fá athygli og aðdáun umheimsins. Með ferðum sínum myndar hann tengsl við fólk um víða veröld en landkönnuðurinn verður að hafa jákvætt og fordómalaust viðhorf til þess margvíslega fólks sem hann hittir á ferðum sínum. Að vera landkönnuður verður fljótlega að lífsstíl þannig að landkönnuður greinir ekki skarpt á milli einkalífs síns og starfs síns sem landkönnuðar. Þvert á móti nýtir hann persónulega reynslu með því að tengja hana því sem honum gæti komið að góðu gagni á ferðum sínum. Þessi lýsing á að mjög miklu leyti við um Heklu. Það er kona sem hrífst auð- veldlega af nýjungum og fer jafnframt strax að hugsa um hvernig nýjungin geti nýst í kennslu. Mérfannst þetta samt mjög spennandi miðill og mér datt í hug hvernig væri hægt að nota þetta í kennslu afþví að ég var alveg viss um að þetta mundi koma sko - bara eftir að hafa séð vefsíðu.2 Skipulagsgáfan og frumkvæðið verða til þess að frumkvöðullinn lætur ekki sirja við orðin tóm. Þó að maður kunni ekkert á tæknina lætur maður það ekki verða til þess að stoppa sig og hefur ekki áhyggjur af að slíkt verði of flókið eða erfitt í framkvæmd heldur lítur á það sem hvert annað verk sem verður að ganga í að leysa ætli maður að komast leiðar sinnar. Sá sem hefur hugarfar landkönnuðar má ekki vera að því að bíða eftir að tæknin verði auðveldari - þvert á móti verður hann að vera fljótur að nýta sér nýja tækni ef aðrir eiga ekki að finna löndin á undan honum. Og þá verður hann að fá sér aðstoðarmenn sem kunna á tæknina og fljótlega kemst hann að því að ef hann ætlar að komast áfram verður hann að læra á tæknina sjálfur. I rannsókn minni kom víða fram að Hekla er ófeimin við að breyta um stelling- ar í kennarahlutverkinu, að bregða sér úr hefðbundnu hlutverki fræðarans yfir í það að vera meira til aðstoðar eftir því sem nemendur þurfa. Nýjungagirnin er líka greinilega mikill hvati og þeim sem er frumkvöðull finnst endurtekning svo leiðin- 2 Tilvitnanir í frumkvöðulinn, sem var viðfangsefni mitt, eru byggðar á viðtali sem tekið var í nóvember 1998. Sjá nánar Þuríði Jónu ]óhtmnsdóttur 1998. 110