FRUMKVÖÐLAR OG ANNAÐ FÓLK í ÓLGUSJÓ UPPLÝSINGA. Fyrst skal nefna frumkvöðlana sjálfa sem eru áræðnir og til í að prófa nýjungar. Hlutverk þeirra er að innleiða nýjungar að utan inn í stofnunina. Það eru þó ekki frumkvöðlarnir heldur þeir sem eru mjög móttækilegir fyrir nýjungum sem eru mikilvægastir í útbreiðsluferlinu vegna þess að þegar þeir hafa tekið við sér hefst notkun nýjunga og þær byrja að öðlast viðurkenningu. Þegar þessi hópur hefur viðurkennt breytingar er líklega stutt í að sá meirihluti fólks, sem er yfirleitt fremur móttækilegur fyrir breytingum, fylgi á eftir. Það fólk er þó varfærnara í upptöku nýjunga en fyrstu tveir hóparnir. En þegar það hefur meðtekið nýjungar eru þær orðnar almennar. Seinni meirihlutinn er ekki auðsannfærður um gagnsemi nýjunga. Þrýstingur félaga er líklegur til að hafa áhrif á ákvörðun hans. Sleðarnir eða þeir hægfara koma síðast. Roger leggur áherslu á að ekki eigi bara að líta á þann flokk með neikvæðu hugarfari. Þetta eru einfaldlega hefðarsinnar sem taka sinn tíma í að taka nýjungar fram yfir það gamla og góða sem hefur reynst þeim vel hingað til. Auk frumkvöðlanna sem oft stuðla ómeðvitað að því að koma af stað breyt- ingaferli gegna talsmenn breytinga (change agents) mikilvægu hlutverki. Þeir greiða fyrir því að nýjungar verði teknar upp með því að reyna að hafa áhrif á að þær séu meðteknar eða þeim hafnað. Talsmaður breytinga er oft skoðanamótandi foringi í hópnum og kemur úr hópi þeirra sem eru fljótir til nýjunga. Slíkur maður getur verið öflugur liðsmaður í breytingaferli (Rogers 1983:312). LANDKÖNNUN EÐA PAKKAFERÐ Hugmynd mín um að líkja frumkvöðlinum við landkönnuð er þróuð út frá hug- mynd Saye sem að sínu leyti hefur þróað sína hugmynd út frá líkingum annarra fræðimanna sem hann gerir grein fyrir. Saye býr til andstæðuás sem hann raðar kennurum og nemendum á samkvæmt þeim persónueinkennum sem hann greinir í viðhorfum þeirra til menntunar, skóla og kennsluaðferða. Til að skýra andstæðurn- ar líkir hann þeim annars vegar við Accidental Tourists hins vegar Voyageurs og mætti þýða sem pakkaferðamenn og landkönnuði. Taflan hér á eftir lýsir megin- dráttum í flokkuninni. Einkenni íslenska frumkvöðulsins Heklu falla að flestu leyti undir það sem Saye kallar landkönnuð. Hún þolir ekki bara vel óvissu heldur finnst mér saga hennar hér að framan sýna að hún sækist eftir því að fara inn á nýjar brautir og jafnvel má ganga svo langt að segja að hún þrífist á því að gera skólastarfið að skemmtilegu ævintýri út í óvissuna. Þess vegna finnst mér líkingin við landkönn- uðinn eiga sérstaklega vel við. í könnun Saye kemur í ljós að mjög fáir kennarar hafa persónueinkenni land- könnuðarins. Það hjálpar manni til að átta sig á og greina það umhverfi sem frum- kvöðlar vinna í. Skólamenningin eins og hún er núna er ekki þess eðlis að hún sé móttækileg fyrir nýjum hugmyndum sem raska venjum og hljóta þess vegna að hafa í för með sér ákveðið óöryggi eins og allar breytingar. 114