TOLVUMENNING ISLENSKRA SKOLA Mynd 6 Viðbrögð eftir kyni og aldri við staðhæfingunni Ég er mjög klár" að nota tölvur á marga mismunandi vegu" (5 = sammála, 1 = ósammála) 5,0 4,0 3,0 :0 1,0 0,0 KYN Stúlkur Piltar 6. 7. 8. 9. 10. l.ár 2. ár Bekkur / ár Ef skoðaður var munur í viðhorfaspurningunum tíu eftir skólum og á unglingastig- inu eingöngu sást einnig að kynjamunur kom fram í þessari spurningu í átta skól- um af níu. Eingöngu í skóla L5 var ekki kynjamunur, en það er annar af þeim skól- um þar sem ekki kom fram munur kynjanna í sjálfmetinni færni. Þættir sem tengjast sjálfmetinni færni Fylgnipróf voru notuð til að finna hvaða þættir tengdust helst sjálfmetirvni færni annars vegar hjá piltum og hins vegar hjá stúlkum á unglingastigi. Gert var Pearson- fylgnipróf á sjálfmetinni færni og fjölmörgum öðrum breytum (11 viðhorfaspurning- um, 14 spurningum sem tengdust heimanotkun tölva eða notkun félaga á tölvum og 32 breytum sem tengdust tölvunotkun í skóla, sumt upplýsingar sem komnar voru frá nemendum en annað frá skólastjórnendum eða tölvuumsjónarfólki). Þegar niðurstöður í Töflu 2 eru skoðaðar kemur í ljós að bæði hjá piltum og stúlkum er sjálfmetin færni í miklum tengslum við ýmiss konar heimanotkun tölva og forrita. Sláandi var sérstaklega hin háa jákvæða fylgni sem var á milli fjölda forritaflokka sem notaður var heima og sjálfmetinnar færni (r(231)=0,616, p<0,001 234