BORN MEÐ HREYFIVANDA Mynd 1 Greining hreyfihegðunar Hreyfihegðun Hreyfistjórn Hreyfiröskun Hreyfinám Hreyfinám (Motor learning) hefur verið skilgreint sem: et sett av prosesser knyttet til praksis eller erfaring som forer til relativt permanente forandringer i evnen til á utfore motoriske ferdigheter" (Schmidt 1991). I rannsóknum á hreyfinámi er oftast prófað með einföldum hætti. Lagt er fyrir eitt próf fyrir þjálfun og annað eftir þjálf- un. Þriðja prófið þarf að leggja fyrir þó nokkru síðar til að sjá hvort þjálfunaráhrif séu varanleg. Hreyfistjórn Hugtakið hreyfistjórn (Motor control) tekur til aðstæðna hér og nú þar sem hreyfi- þroski og hreyfinám vísa til breytinga sem verða með tímanum. Könnun á hreyfi- stjórn felur því í sér að kanna stöður og hreyfingar og vald einstaklingsins á þeim (Rose 1997). Hreyfiþroski Hreyfiþroska (Motor development) er hægt að skilgreina sem aldurstengdar breyt- ingar og aukna færni. Oftast var aðeins fylgst með hreyfiþroska barna tvö fyrstu æviárin, meðan mestu framfarirnar eiga sér stað en nú er hins vegar mjög algengt að líta á hreyfiþroska sem ævilangt ferli. Hreyfiröskun Hugtakið hreyfiröskun (Movement disorder) getur náð yfir allt frá lömun (para- lyse) til þess sem líta má á sem klossaðar" eða stirðlegar hreyfingar. I þessari grein verður fjallað um hið síðara. 144