ANNA MARIA STEINDORSDOTTIR GUÐBJÖRG HARALDSDÓTTIR GUÐNÝ SIGURJÓNSDÓTTIR SIGURBJÖRG K. JÓNSDÓTTIR LÆKJARÁS í DAGSINS ÖNN Öll höfum við þörf fyrir að starfa og vera virk í samfélaginu. Fyrr á árum þótti það hins vegar ekki sjálfsagður hlutur þegar þroskaheftir voru annars vegar. Þessu er sem betur fer öðruvísi farið nú og er Lækjarás einn af þeim stöðum sem býður upp á dagþjónustu fyrir þroskahefta. I þessari grein ætlum við að kynna þá starfsemi sem fram fer á Lækjarási." Lækjarás er þjálfunarstaður fyrir fatlaða og er rekinn af Styrktarfélagi vangef- inna. Lækjarás er í Stjörnugróf 7 og hóf starfsemi sína árið 1981. Þjónustu staðarins sækja 32 fatlaðir einstaklingar frá 20 ára aldri og búa þeir ýmist á sambýlum eða hjá foreldrum/aðstandendum. Starfsemin fer fram á virkum dögum frá kl. 9.00-16.30 og bæði er boðið upp á hádegismat og miðdegishressingu. Einstaklingarnir sem sækja þjón- ustu í Lækjarás eru afar ólíkir og hafa misjafnar þarfir. Gerð er stundaskrá fyrir hvern og einn þar sem skipulagðar þjálfunarstundir eru færðar inn svo og matartími, sjúkraþjálfun, skólatilboð og fleira þess háttar. Umsögn um starf vetrarins er gerð að vori. Starfsemin skiptist í fimm deildir og við skipulagn- ingu á innra starfi er reynt að sjá til þess að a.m.k. einn fagaðili starfi á hverri deild og búum við nú svo vel að meiri- hluti starfsfólks Lækjaráss er fagmennt- aður. Hver deild hefur ákveðin mark- mið og ákveðnar áherslur í starfinu sem tengjast markmiðum staðarins en þau eru byggð á lögum Styrktarfélags van- gefinna og lögum um málefni fatlaðra. Ein af fimm deildum Lækjaráss er í Blesugróf 31 og er í daglegu tali kölluð Húsið". Þessi deild þjónar öldruðum þroskaheftum og sækja 15 einstaklingar þangað þjónustu. í Húsinu" er tekið mið af hækkandi aldri og þeim breytingum sem því Kristín Helga nýtur sín á listadegi. Ljósmyndir í greininni eru höfunda. Uppeldi og menntun - Tímarit Kennaraháskóla íslands 8. árg. 1999 151