ANNA MARIA ST E I N DÓ R S DÓTT I R O.FL. Lilja Rós sprautumálar á listadegi sumarsins. gaman af því sem hann er að gera og sjái tilgang með því skiptir sköpum og er þess vegna mikilvægt að flétta æfingar saman við áhugasvið hans. Líkamsþjálfun fer reglu- lega fram á mismunandi hátt. Farið er í sund, heit- an pott og gönguferðir, stunduð úrivera, garðvinna og hestamennska. Líkam- leg þjálfun tengist iðulega annarri þjálfun þar sem unnið er með grip og sam- hæfingu ásamt hugsun. Sjúkraþjálfun skipar veigamikinn sess í starfi með skjólstæðingum Lækjaráss. Flestir fara reglulega í sjúkraþjálfun, ásamt því að mikill tími fer í notkun ýmissa hjálpartækja, s.s. standbekkja, göngugrinda og hand- og fótspelkna. Vinna og verkþjálfun skipar stóran sess á Lækjarási. Um það bil helmingur þeirra sem sækja þjónustu á Lækjarás vinnur við að pakka mjólkursýnisflöskum fyrir Sigurplast og er þetta eina vinnan sem unnin er nú fyrir fyrirtæki. Þessi pökk- unarvinna er mjög fjölbreytt og geta margir tekið þátt í einhverjum hluta hennar. Komið er inn á ýmsa þætti, s.s. mikilvægi hreinlætis, samvinnu, frumkvæði, virkni, úthald o.fl. Þeim hefur þó fækkað mikið undanfarin ár sem geta unnið við þetta. Þeir getumestu hafa útskrifast héðan og farið annað og hingað hafa komið fatlaðri einstaklingar sem ráða ekki við þessa vinnu. Við höfum komið okkur upp verkefnasafni sem allir á staðnum hafa aðgang að. Markmið þessara verkefna er að þjálfa samhæfingu augna og handa, fínhreyf- ingar, einbeitingu, úthald og skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð. í vinnu með þessi verkefni er stuðst við TEACCH-aðferðarfræði. Aðferðin byggist á skipulagi þar sem mikilvægt er að einstaklingurinn átti sig á til hvers er ætlast af honum. Áhersla er lögð á að verk- efnin hentí getu hvers ein- staklings og að þau séu fjöl- breytt og áhugavekjandi. Lilja Rós og Jóntnn Lilja í pökkunarvinnu. 153