LÆKJARÁS Í DAGSINS ÖNN Tölvur hafa sannað gildi sitt í starfi með þroskaheftum og hefur mikil þróun átt sér stað á því sviði. Vinna með tölvur og rofa reynir á frumkvæði og fínhreyfingar notandans, tjáskipti hans og hugarstarfsemi. Nýlega eignuðumst við á Lækjarási tölvur sem nýttar eru m.a. til þjálfunar. Enn sem komið er erum við ekki rík af forritum en smátt og smátt bætist í safnið. Mikil vinna fer í að finna út hvaða rofar henta hverjum og einum og hvernig aðstaðan þarf að vera til þess að tölvan nýtist sem best. Rofar eru einnig notaðir við aðrar aðstæður, t.d. við að kveikja á segul- bandi eða litríkum ljósum, setja handþeytara í gang, láta plötu snúast í hring og setja nuddpúða af stað. Þarna reynir á hugmyndaflug starfsmanns auk þess sem gott er að leita í áhugasvið viðkomandi skjólstæðings. Hópastarf er skemmtileg og góð leið til að virkja einstaklinginn. Nokkrir hópar eru starfandi á Lækjarási. Má þar nefna karlaklúbb, þar sem karlmenn staðarins ræða um atburði liðinnar viku sem og ýmis hugðarefni, leikræna tjáningu þar sem unnið er með æfingar sem stuðla að virkni og frumkvæði og söngstund þar sem fólk safnast saman og syngur lög sem það velur sjálft af þar til gerðum söngspjöld- um. Boðið er einnig upp á skapandi starf þar sem ýmiss konar listaverk fæðast í viku hverri. Þessum hópum er öllum stjórnað af starfsfólki Lækjaráss og eru hæfileikar hvers og eins nýttir til hins ýtrasta. Nýlega voru líka stofnaðir vinnuhóp- ar starfsmanna sem hafa það að markmiði að halda utan um og þróa ýmsa starf- semi sem annaðhvort er til staðar eða verður á næstunni. Má þar nefna nuddhóp, hóp sem sérhæfir sig í Tákni með tali" (tjáningarform), hugbúnaðarhóp (tölvur og rofar), bókasafnshóp og hóp um skapandi starf. Ymsar uppákomur eru árið um kring til að lífga upp á starfsemina. Heilsuvika er orðin árviss viðburður á hverju sumri, þar sem lögð er sérstök áhersla á hollt mataræði, útivist og hreyfingu, ásamt góða skapinu. Listahátíð, diskótek, dags- ferðalög, jólaskemmtun og kirkjuferð fyrir jólin eru einnig fastir liðir. Undanfarin ár hefur verið haldinn sameiginlegur útivistardagur Lækjaráss og Bjarkaráss. Þann dag er m.a. keppt í fótbolta, reiptogi, boðhlaupi og hjólastólarallýi og endað á því að grilla. Til að samræma starf- semi staðarins eru haldnir reglulegir fundir starfs- fólks. Samskipti við heim- ili og skóla fara reglulega fram gegnum síma og sam- skiptabækur, fundir með tengslastofnunum og/eða aðstandendum eru haldn- ir eftir þörfum auk skipu- lagðra aðstandendakvölda. Undanfarin tvö ár hafa starfsmenn farið í heim- sóknir á sambýli þroska- Sverrir í hjólastólarallýi. heftra til að kynna starf- 154