ANNA MARÍA S T E I N D Ó R S D Ó T T I R O.FL. semi Lækjaráss og hefur það heppnast vel og verður framhald þar á. Starfsdagur er haldinn tvisvar á ári og ýmsar uppákomur eru haldnar fyrir starfsfólk bæði í formi fræðslu og skemmtunar. Starfsdagar eru oft nýttir til vettvangsferða og eru þá aðrir staðir heimsóttir, bæði innan höfuðborgarsvæðisins og utan. Starfsfólkið fylgist vel með því sem er að gerast í málefnum fatlaðra, sækir námskeið, fyrirlestra o.s.frv. Mikil fagleg uppbygging hefur átt sér stað undanfarin ár en óneitanlega setur þröngur húsakostur okkur ákveðnar skorður. Þróunin síðustu ár hefur verið sú, að æ fatlaðri einstaklingar koma á Lækjarás sem leiðir af sér þörf fyrir fleiri stöðugildi og meira rými. Sjúkraþjálfunaraðstaðan er löngu sprungin og aðstaða til einstak- lingsþjálfunar er af skornum skammti. Auk þess vantar betri aðstöðu til að geyma hjálpartæki. Þrátt fyrir að ýmislegt megi betur fara lítum við á Lækjarási björtum augum til framtíðarinnar. Við vonumst til að okkur haldist á fagmenntuðu fólki en það veltur að sjálfsögðu á mannsæmandi launum. Jafnframt vonumst við til að sjá fleiri úrræði í dagvistunarmálum þroskaheftra því við vitum að margir eru enn á biðlistum eftir þjónustu. Anna María Steindórsdóttir Guðbjörg Haraldsdóttir Guðný Sigurjónsdóttir Sigurbjörg K. Jónsdóttir eru þroskaþjálfar á Lækjarási í Reykjavík. 155