JOHN DEWEY SKOLINN OG FELAGSLEGAR FRAMFARIR Formálsorð þýðanda* Fyrir eitt hundrað árum (1899) kom út í Bandaríkjunum bókin The School and Society (Skóli og samfélag) eftir þarlenda heimspekinginn og menntafrömuðinn John Dewey. Það sem hér fer á eftir er fyrsti kafli þessarar bókar,1 en hún vakti strax geysimikla athygli, ekki aðeins í heimalandi höfundar heldur og í öðrum löndum vítt og breitt um heiminn og var fljótlega þýdd á mörg tungumál. Hér voru á ferð- inni hugmyndir um róttækar breytingar á kennsluháttum og skólastarfi, nýtt við- horf til skólans sem samfélagsstofnunar. Meginstefið í þessum kafla er að iðnvæð- ing, þéttbýlismyndun, vísindi og tækni hafi valdið svo hraðri, víðtækri og algjörri" byltingu að skólarnir geti ekki leitt hana hjá sér. John Dewey fæddist í bænum Burlington í Vermontfylki árið 1859 og var rúmlega hálffertugur þegar hann stofnaði (1896), ásamt konu sinni Alice Chipman, tilrauna- skóla - sem oftast gekk undir nafninu Deweyskólinn - í tengslum við kennslufræði- deild háskólans í Chicago. Þess má geta að Dewey stjórnaði þessari deild, sem hafði verið komið á fót að hans frumkvæði, og var jafrvframt prófessor í heimspeki við háskólann. Tilraunaskólinn, sem brátt varð víða frægur, var stofnaður í þeim tilgangi að prófa nýja kennsluhætti. Því miður stóð skólinn ekki nema átta ár í þeirri mynd sem hann var rekinn af Dewey og konu hans. Vegna ágreinings við rektor háskólans um framtíðarskipan mála flutru þau hjón frá Chicago til New York þar sem Dewey fékk prófessorsstöðu í heimspeki við Columbia-háskóla og kenndi jafnframt við hinn fræga Teachers College sem var í tengslum við háskólann. Eftir aldarfjórðung lét hann af störfum við háskólann fyrir aldurs sakir en hélt áfram ritstörfum til æviloka. Nokk- ur af bestu verkum Deweys komu út þegar hann var kominn á áttræðisaldur, t.d. Experience and Education (Reynsla og menntun), How We Think (Hugsun og menntun), aukin og endurbætt útgáfa,2 Art as Experience (List sem reynsla) og stórverkið Logic - The Theory oflnquity (Rökfræði - kenningin um rannsakandi hugsun). Dewey var afkastamikill á ritvellinum og skrifaði á sjö áratuga rithöfundarferli - hann hafði næstum þrjá um nírætt þegar hann dó (1952) - 40 bækur og ótal grein- ar bæði í fagtímarit og önnur, um menntamál, heimspeki, félagsmál og stjórnmál. Ég þakka Jónasi Pálssyni og Þuríði J. Kristjánsdóttur fyrir yfirlestur á þýðingu þessa bókarkafla. Þau komu með margar góðar athugasemdir og tillögur um betra málfar. Einnig á ritstjóri Uppeldis og mcnntunar, Heimir Pálsson, þakkir skilið fyrir ýmsar snjallar lagfæringar á textanum. í útgáfu frá 1976 eru níu kaflar og vil ég vekja sérstaka athygli á þessum: The School and the Life of the Child (2. kafli), The Psychology of Occupations (7. kafli) og The Development of Attention (8. kafli). Þessar bækur, þ.e. Rci/nsla og menntun og Hugsun og menntun hafa verið þýddar á íslensku og verða gefnar út af Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla íslands árið 2000. Uppeldi og menntun - Tímarit Kennaraháskóla íslands 8. árg. 1999 ±Dy