SKOLINN OG FELAGSLEGAR FRAMFARIR unar, raunvísinda fyrir byrjendur, listgreina og sögu; að setja skör lægra það sem er einungis táknbundið og formlegt; breytingin á hinu siðferðilega andrúmslofti í skólanum, á sambandi nemenda og kennara - á aga; tilkoma virkari, merkingar- ríkra og sjálfstýrandi þátta - allt þetta eru ekki bara aukaatriði, það eru óhjákvæmi- legar afleiðingar hinnar víðtækari samfélagslegu framvindu. Það er bara eftir að koma skipulagi á alla þessa þætti, að gera sér grein fyrir því sem í þeim felst og að koma þeim hugmyndum og hugsjónum sem hér eru á ferðinni undir alger og óhagganleg yfirráð skólakerfisins. Að gera þetta merkir að gera hvem og einn af skólum okkar að samfélagi í smækkaðri mynd, þar sem nám felst í störfum sem spegla líf hins stærra samfélags, gegnsýrt af anda lista, sögu og raunvísinda. Þegar skólinn gefur hverju barni aðild að svona litlu samfélagi og þjálfar það til þátttöku í því, gegnsýrir það með anda þjónustu og sér því fyrir tækjum áhrifaríkrar sjálf- stjórnar, þá höfum við mestu og bestu tryggingu fyrir stærra samfélagi sem er okkur samboðið, þar sem yndisleiki og eindrægni ríkja. Gunnar Ragnarsson heimspekingur og fyrrverandi skólastjóri þýddi. 170