FRÁ RITSTJÓRA Seint koma sumir - og koma þó!" segir gamalt máltæki. Uppeldi og menntun er enn þriðjungi árs á eftir ártali sínu nú, en hefti ársins 2000 kemur þó út fyrir mitt ár 2001. Þetta er vissulega ekki einstætt meðal vísindarita og kannski nokkur huggun að á síðustu tveim ritstjórnarárum hefur þó unnist eins og einn ársfjórðungur! Að gamn- inu slepptu er þetta samt umhugsunarefni. Það er of algengt að háskólafólk hlaðist verkum svo að það seinki verulega viðfangsefnum eins og þessu, því í raun hefði þetta hefti átt að geta komið út fyrir áramót ef ekki hefðu komið til annir ritstjóra og höfunda. Þetta er ekki sagt til þess að biðjast velvirðingar heldur aðeins til þess að minna menn á að eitt af verkefnum framtíðarinnar í háskólastarfi hlýtur að vera að draga úr vinnuálagi og skapa frjóar aðstæður til vísindaiðkana og útgáfu. Umræðu er þörf, en það kann líka að vera skynsamlegt að horfa í fleiri áttir en hina gútenbergsku. Undanfarin misseri hefur fólk rætt saman innan Kennarahá- skóla íslands um nýtt vefrit, Netlu; nafnið er komið frá einum af höfundum síðasta heftis Uppeldis og menntunar, Þuríði Jóhannsdóttur, og vísar með skemmtilegum hætti bæði til Netsins og brenninetlunnar, því sannarlega er þörf á riti sem stingur! Engin ákvörðun hefur verið tekin, en þessari Netlu yrði síður en svo stefnt til höfuðs Uppeldi og menntun heldur gæti hún miklu fremur orðið eins konar gróðrar- stöð fyrir prentaða útgáfu. Greinar sem fengið hafa dálitla eldskírn í Netlu verða áreiðanlega boðnar velkomnar í prentuð rit og þar með einmitt fallist á þá skoðun að ritun slíkra greina sé ferli en ekki líkjandi við fæðingu Aþenu, sem stökk alsköp- uð úr höfði föður síns. Ný tækni mun kenna mönnum að hugsa og vinna með nýj- um hætti. Það tekur tíma, en það gerist. í þessum níunda árgangi Uppeldis og menntunar kennir ólíkra grasa. Listgreinin dansmennt fer fyrst en síðan fjalla sérfræðingar um náms- og starfsfræðslu, nátt- úrufræðimennt, félagslega stöðu barna, tvítyngd leikskólabörn og boðskipti mikið fatlaðra barna. Undir fyrirsögninni Um starfið er birtur fyrirlestur um fagmennsku og kafli ritsins um bækur og námsefni fjallar um stærðfræðing og umhverfismennt. - Efnið sýnir breidd þeirrar stofnunar sem að tímaritinu stendur og á vonandi eftir að blasa enn betur við í næstu árgöngum. Þegar horft er til baka yfir þá níu árganga sem nú hafa birst af Uppeldi og menntun er ljóst að mikið af efni tímaritsins er niðurstöður eigind- eða megindlegra rannsókna. Tölfræðilega úrvinnslu gagna ber þar mjög hátt. Þetta skal sannarlega ekki lastað en hins vegar er freistandi að spyrja hvort tímarit sem kennir sig við Kennaraháskóla íslands og er gefið út af honum þurfi ekki líka að egna til um- ræðna, verða vettvangur skoðanaskipta um álitamál, taka undir það sem prófessor Trond Berg Eriksen í Ósló hefur orðað ágætlega: Tilgáta er tilraunastofa (En teori er et laboratorium). Kennaramervntunin þarf stöðugt á nýjum tilgátum (þ.e. tilrauna- stofum) að halda og þar bíða mikil verkefni fyrir tímaritið og höfunda þess. Það er von mín þegar ég óska nýjum ritstjóra góðs í starfi að Uppeldi og menntun eigi eftir að verða hvassari geir en hingað til, nái með tíu ára afmælinu að verða ritið sem menn tala um, vitna til og viðurkenna að skiptir máli.