SIGRÍÐUR Þ. VALGEIRSDÓTTIR Lokamarkmið dans og líkamstjáningar ígrunnskóla: Við lok grunnskóla eiga nemendur að: - hafa öðlast skilning á hreyfigeru líkamans, möguleikum hans til tjáning- ar og færni í að beita honum til sköpunar. - hafa öðlast félagslegt öryggi til þess að tjá hugsun sína, hugmyndir og tilfinningar í hreyfingu/dansi. - vera færir um að samhæfa hreyfingar og tónlist og hafa sjálfstraust til að dansa við algeng danslög. Skynjun / greining / mat: - hafa öðlast þekkingu á menningararfleifð eigin þjóðar og annarra í dansi (bls. 20-21). Tekið er fram að kennsla í dansi og líkamstjáningu sé í höndum almennra bekkjar- kennara og sérgreinakennara, svo sem íþróttakennara eða danskennara eftir að- stæðum. Þá segir að lokum: Skólar verða að tryggja að allir nemendur geti mætt lokamarkmiðum grunnskóla í dansi og líkamstjáningu" (bls. 32). Áður var lítillega vikið að dansi í fyrri námskrám um íþróttir hér á landi en þær tillögur um markmið sem hér voru kynntar eru frá því síðsumars 1997. Hugmyndir að ofangreindum markmiðum dansmennta í grunnskólum lagði greinarhöfundur fram að beiðni nefndar sem sá um endurskoðun aðalnámskrár í listgreinum grunn- og framhaldsskóla á vegum menntamálaráðuneytisins. í nóvember sama ár komu saman kennarar sem vel þekktu til einstakra danssviða, ræddu þetta mál og urðu sammála um að ítreka áðurnefndar tillögur. Þær voru aðeins endurbættar og send- ar námskrárnefnd um listgreinar í byrjun desember 1997. Eftirfarandi er síðari gerð þessara tillagna sem efnislega eru óbreyttar en sund- urliðun aðeins hnikað til. Tillögur um dansmennt í grunnskóla: Meginmarkmið dansmennta: - Nemandi efli sjálfstraust til að tjá hugsun sína, hugmyndir og tilfinning- ar í hreyfingum og dansi. - Nemandi efli skynjun og skilning á hreyfigetu líkamans og möguleikum hans til tjáningar og færni í túlkun eigin verka og annarra. - Nemandi efli félagslegt öryggi með þátttöku í dönsum eigin þjóðar og annarra, dansi við aðra eða fyrir aðra. Einnig efli hann sjálfstraust og öryggi í framkomu og kjark til að taka þátt í almenningsdönsum á hverj- um tíma. - Nemandi efli færni í að samræma hreyfingar/dans og tónlist (takt, hryn og önnur sérkenni og blæbrigði). - Nemendur auki þekkingu sína á siðum og menningarhefðum eigin þjóðar og annarra með þátttöku í þjóðdönsum eigin lands og annarra svo og samtímadönsum ungs fólks. Eftirfarandi markmið er viðbót við tíllögurnar en gæti eins fallið undir útfærslu þeirra. - Nemendur fái aðstöðu til að kynnast tengslum dansins við aðrar náms- greinar skólans t.d. með samvinnu við aðrar listgreinar en einnig við bóklegar greinar þar sem það þykir henta. 17