STEFNUR OG STRAUMAR I N ATTU R U F R A\Ð I M E N NT U N AÐALNAMSKRA I NATTURUFRÆÐI A ISLANDI Nýlega komu út aðalnámskrár leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Tvö hefti skipta mestu máli fyrir þá sem þurfa að fylgja aðalnámskrá grunnskóla í náttúrufræði, Almenn- ur hluti (Menntamálaráðuneytið 1999a) og Náttúrufræði (Menntamálaráðuneytið 1999b). í Almenna hlutanum kemur fram (framsetning og leturbreyting er höfundar): Aðalnámskrá er sett af menntamálaráðherra með sama hætti og reglugerðir og gegnir margvíslegu hlutverki. Hún er allt í senn: srjórntæki til aðfylgja eftir ákvæðum laga, fyrirmæli fræðsluyfirvalda um aðákveðinni skólastefnu séframfylgt og safn sameiginlegra markmiða skólastarfs í landinu (bls. 20). Tveir hópar unnu að náttúrufræðinámskránni, forvinnuhópur sem lagði línurnar og vinnuhópur sem útfærði þær í markmiðum, og vann ég í seinni hópnum. Við vorum 11 alls, og fengum við oftast fyrirmæli um tilhögun starfsins og framsetn- ingu námskrárinnar frá verkefnisstjóra fyrir milligöngu umsjónarmanns hópsins. Akveðið var í forvinnuhópnum að þörf væri á að skrifa áfangamarkmið um eftirfarandi efnisþætti: Vinnubrögð og færni nemenda Hlutverk og eðli náttúruvísinda Eðlisvísindi, lífvísindi og jarðvísindi Ákveðið var í vinnuhópnum að útfæra þrepamarkmið eingöngu í þeim síðast- nefndu en jafnframt að reyna að tvinna saman atriði úr öllum flokkunum. En hvernig eru markmiðin skilgreind í Almenna hlutanum? Markmið aðalnámskrár eiga því hvorki að skoðast sem hámark né lágmark (bls. 21). Sett eru fram lokamarkmið greinarinnar sem eiga að lýsa í meginatriðum hvaða kunnáttu, skilnings og færni er krafist af nemendum almennt að loknu grunnskólanámi í greininni og sett eru fram markmið við ákveðin skil í náminu (bls. 23). Áfanga- og þrepamarkmið eru þannig í beinu samhengi við lokamarkmið (bls. 23). Til þess að ná áfangamarkmiðum þarf að ná þrepamarkmiðum (bls. 24). Aðalnámskráin gerir ráð fyrir því að áfangamarkmið verði meginviðmið í öllu skólastarfi (bls. 24). Áfangamarkmiðin eru þanriig orðuð að tiltölulega auðvelt á að vera að mæla eða meta hvort eða að hvaða marki þeim hefur verið náð (bls. 24). Þrepamarkmið eru safn markmiða/viðfangsefna til að ná áfangamarkmið- um (bls. 24). Aðalnámskráin setur fram þrepamarkmið kennurum, foreldrum, og nem- endum til leiðsagnar (bls. 24). Við lásum ýmsar námskrár, m.a. frá Skotlandi, Englandi, Kanada (British Columbia og Saskatchewan), Noregi, Bandaríkjunum og Nýja Sjálandi, sem allar hafa komið 70