M. ALLYSON MACDONALD út nýlega. Við vorum mjög hrifin af ýmsu sem kom fram í þeim. Myndin sem birt er á bls. 8 í Aðalnámskrá grunnskóla. Náttúrufræði (1999) og lýsir sambandi milli efnis- þátta er mjög svipuð því sem kemur fram í námskránni frá Nýja Sjálandi. Við vildum nýta okkur hugmyndir um framsetningu kennsluhugmynda í nokkrum erlendum námskrám sem við töldum að væru aðlaðandi og áhugaverðar fyrir kennara, við vildum fækka þrepum úr 10 í 6-8, og vildum setja vinnu okkar fram með öðrum hætti, þannig að þróun hugtaka og markmiða væru sýnileg milli áfanga. Okkur fannst mjög erfitt að vinna innan þess ramma sem var lagður fyrir okkur varðandi skiptingu áfanga- og þrepamarkmiða. Sem vinnuhópur vorum við lengi að komast af stað og mynda leiðir til að hugsa saman. Ekki var heldur nægi- legur tími til að kynna og ræða hugmyndir nógu vel með þátttöku kennara og ann- ars starfsfólks í skólum. Síðan heftið birtist vorið 1999 hafa fyrstu viðbrögð kennara og kennaranema ekki verið neikvæð og eru margir hópar nú að vinna að gerð skólanámskrár. En hvað er sagt um kennara og námsmat í Almenna hlutanum? Kennarar bera faglega ábyrgð á að velja heppilegustu og árangursríkustu leiðirnar til að ná markmiðum aðalnámskrár og skólanámskrár (bls. 31). Val á kennsluaðferðum og skipulag skólastarfs verður að miðast við þá skyldu grunnskóla að sjá hverjum nemanda fyrir sem bestum tækifærum til náms og þroska (bls. 32). Námsmat í grunnskóla skal að jafnaði framkvæmt af kennurum skólans og skulu nemendur og forráðamenn þeirra fá sem gleggstar upplýsingar um námsárangur (bls. 35). Þegar mat er lagt á framfarir eða frammistöðu nemenda með hliðsjón af markmiðum grunnskóla er nauðsynlegt að hafa tvennt til viðmiðunar. Annars vegar þann nemanda sem í hlut á ...Hins vegar samanburð við aðra... Til þess að upplýsingar þær sem námsmat gefur verði trúverðugar, réttlátar og heiðarlegar og byggi upp raunhæft sjálfsmat nemenda, verður að nota báðar þessar viðmiðanir (bls. 38). Ljóst er að áhugamál og stefna ráðherrans er að serja nokkuð ítarleg markmið fyrir nemendur og síðan að bera nemendur saman. Til þess ætlar hann aðallega að nota áfangamarkmið og samræmd próf, þó svo að hann segi: Kennarar bera faglega ábyrgð á að velja heppilegustu leiðirnar" og Námsmat í grunnskóla skal að jafnaði framkvæmt af kennurum skólans." En hverju höfum við náð með nýju námskránni? Helstu kostir - Áherslur eru lagðar á skilning nemenda og hvað nemendur gera í námi. - Áherslur eru lagðar á verknám en þó oftast í samhengi við hugtakaþró- un. - Nýr námsþáttur um jarðvísindi hefur bæst við. - Leitað var eftir samfellu í námi og stigvaxandi kröfur gerðar til nem- enda. 71