GUÐRUN KRISTINSDOTTIR TIU ARA BORN STANDA VEL AÐ VIGI Athugun á færni, áhyggjum og lausnum barna Norræn samanburðarathugun náði til 1850 tíu ára barna, foreldra peirra og kennara. Athuguð var færni og aðstæður barnanna á heimili og í skóla svo og áhyggjur íslensku barnanna og leiðirþeirra til lausna á vandamálum. Samanburður áfærni sýndi lítinn mun milli landa. Umhverfi flestra barna stuðlaði að þroska þeirra og þau bjuggu yfirleitt yfir margvíslegri færni og bjargráðum. Lítil tengsl voru milli fjölskyldustöðu ogfærni. Kynja- munur komfram, t.d. er varðaði afstöðu til skólagöngu. Áhyggjur barna tengdust fremur málefnum fjölskyldu en skóla. Á síðari árum hefur athygli fræðimanna hvað snertir daglegt líf barna beinst í aukn- um mæli að færni þeirra og styrk. Margslungið líf nútímabarna leiðir til aukinnar áhættu fyrir þau ásamt því að þau hafa aukið svigrúm til athafna og fleiri valkosti en áður gerðist. Með færni er þá átt við félagsleg og sálræn atriði sem birtast hjá einstak- lingi í hæfni hans, þekkingu og viðhorfum sem hann nýtir til að mynda félagsleg tengsl og viðhalda þeim og verður vikið nánar að þessu síðar. Áherslan á að athuga félagslega færni og viðbrögð til að ráða fram úr álagi byggir á þeim skilningi að öll börn verði fyrir félagslegu og tilfinningalegu álagi í uppvexti. Áhrifin af atburðum daglegs lífs á börn ákvarðist af mörgu, meðal annars af því hve alvarlegir og viðvar- andi srreituþættir eru í umhverfinu og af færni barnsins til að mæta neikvæðum af- leiðingum af streitu og mótlæti. Greinin byggir á nokkrum atriðum úr niðurstöðum rannsóknar á félagslegri færni og aðstæðum norrænna barna. Óhætt er að fullyrða að áhugi hins opinbera á velferð og afkomu barna á Norður- löndum er þó nokkur. Viljinn til að auka þekkingu á því sem stuðlar að og dregur úr velferð barna er talsverður og margbreytilegur og hann birtist m.a. í fjölþættu rann- sóknarstarfi sem norrænir samstarfsaðilar styrkja. Þar sem aðstæður barna á svæðinu eru að ýmsu leyti sambærilegar án þess þó að vera eins, hafa menn haft talsverða trú á gildi norrænna samanburðarathugana. Norræna ráðherranefndin ákvað 1993 að efna til norrænnar samvinnu um rannsóknir á Börnum í áhættuhópum". Með áhættu var átt við arriði sem stofna börnum í tilfinningalegan eða félagslegan vanda eða draga úr styrk þeirra og hæfhi til að komast vel af á þessum sviðum. Stóð hópur fræðimanna að rannsókninni Oppvekstnettverk sem náði tíl tíu ára barna og stóð yfir í u.þ.b. 4 ár. Liggur nú fyrir norræn skýrsla um rannsóknina (Backe-Hansen 1998). Hinn íslenski hluti rannsóknarinnar nefndist Daglegar aðstæður ogfélagslegfærni barna} 1 Helga Ágústsdóttir félagsráðgjafi vann að öflun gagna. Rannsóknin var styrkt af Norrænu Ráðherranefndinni, Rannís, Rannsóknarsjóði Kennaraháskóla íslands og félagsmálaráðuneytinu. Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar lagði til starfsaðstöðu fyrir aðstoðarmann. I>essum aöilum og öðrum aðstoðarmönnum eru færðar sérstakar þakkir. Uppeldi og menntun - Tímarit Kennaraháskóla íslands 9. árg. 2000 / /