TIU ARA BORN STANDA VEL AÐ VIGI Taflal Svör bama: Hve oft hefur pú áhyggjur af eftirfarandi atriðum: Hlutfall Hlutfall Minnstar Mestar Fjöldi:206 áhyggjur Oft" Foreldrar mínir hafa svo mikið að gera Aldrei" Mjög oft" 13 37 Lélegar einkunnir í skólanum 51 11 Stríðni 34 16 Mig skortir vini eða félaga 49 14 Rifrildi 23 17 Veikindi hjá einhverjum í fjölskyldunni 17 23 Erfiðleikar í samskiptum við kennarann 61 7 Fjárhagur eða peningamál fjölskyldunnar 40 19 Atvinnuleysi hjá foreldrum mínum 76 9 Annað hvað: 20 börn, þar af 3: að deyja" 76 30 Að atvinnuleysi undanskildu merkja börnin oftast aldrei" við staðhæfingar um einkunnir og erfiðleika í samskiptum við kennara. Börnin hafa því hlutfallslega sjaldan áhyggjur af einkunnum og erfiðleikum í samskiptum við kennarann. Eink- unnagjöf er svo sem kunnugt er fremur fátíð á þessum aldri svo að það áhyggju- leysi þarf engan að undra. Þetta samræmist einnig öðrum niðurstöðum er varða skólann, t.d. telja umsjónarkennarar félagsfærni barnanna í skólastarfinu almennt tiltölulega mikla. Ekki kom fram marktæk fylgni milli áhyggna og mats kennaranna á félagsfærni (r =-0,13). Hið sama átti við um mat kennaranna á stöðu barnanna í skóla (r =-0,08) og áhuga barnanna á skóla og námsgreinum (r =-0,11). Námið og skólagangan virðist samkvæmt þessu ekki vera þýðingarmesta uppspretta áhyggna meðal barnanna. Félagatengsl eru áhyggjuefni fárra barna. Þó nefna 5% barnanna að þau hafi mjög oft" áhyggjur af því að skorta vini eða félaga og 9% hafa oft" áhyggjur af þessu. Þetta vekur athygli þar eð vinafæð setur börn í talsverða félagslega áhættu svo sem kunnugt er. Ekki kom fram marktæk fylgni milli fjölda áhyggna og kvarða sem notaður var til að meta félagatengsl. Börnin merkja oftast við staðhæfinguna Foreldrar mínir hafa svo mikið að gera" Þar næst við Veikindi hjá einhverjum í fjölskyldunni" og Fjárhagur eða peningamál fjölskyldunnar". Atriði er tengjast fjölskyldunni miklu fremur en skól- anum eru algengustu áhyggjuefnin samkvæmt þessu og vekur það umhugsun. 86