BOÐSKIPTI MIKIÐ FATLAÐRA BARNA - Við hvaða aðstæður eru boðmerki bamsins skýrust? - Hvaða boðmerki sýnir barnið og hvernig birtast þau? - Hvernig svarar móðir barnsins þessum merkjum og hvað virðist helst fara fram hjá henni? - Hvernig eru viðbrögð barnsins í samspili? - Hvernig túlkar móðir barnsins boðmerki þess? Við greiningu á þessum þáttum voru höfð til viðmiðunar virknistig ungbarns, sam- spilshringur, ungbarnaspjall og boðmerki ungbarns en um fræðilegar forsendur þessara þátta var fjallað hér að framan. 2. Hvernig má nota þroskaprófílinn við mat á boðskiptum mikiðfatlaðra barna? í rannsókninni var athugað hvort þeir flokkar sem þroskaprófíllinn felur í sér séu nothæfir til athugunar á boðskiptum mikið fötluðu barnanna þriggja. í því skyni voru settar fram eftirfarandi undirspurningar: - Hvernig viðbrögð sýnir barnið við nánd? - Hvernig kannar barnið umhverfi sitt? - Hvernig birtist félagslegt samspil barnsins? - Hvernig eru boðskipti barnsins? Þátttakendur í rannsókninni tóku þátt þrjú mikið fötluð börn 6, 10 og 14 ára og mæður þeirra. Einnig tóku þátt kennarar barnanna og þroskaþjálfar, alls sex talsins og loks einn utanaðkomandi aðili. Aðstæður barnanna þriggja og foreldra þeirra eru að mörgu leyti sambærilegar. Börnin búa á litlu heimili fyrir fjölfötluð börn og ganga í sér- skóla og eru auk þess í dagvistun fyrir fötluð börn. Þau hafa öll mikil samskipti við foreldra sína, fara oft heim til þeirra og foreldrarnir eru jafnframt mikið inni á heimili barnanna og taka virkan þátt í allri skipulagningu þar. Þátttakendur í rann- sókninni voru valdir í samráði við kennara og þroskaþjálfa barnanna. Gagnasöfnun Gagnasöfnun fór fram á tímabilinu febrúar-maí 1998. Henni var skipt í tvo hluta. 1. Boðskipti hvers barns og móður þess voru tekin upp á myndband á heimili foreldranna. Myndbandsupptökurnar eru grunngögn rannsóknarinnar sem aðrir þættir hennar hvfla á. Lengd hverrar upptöku var 30-60 mínútur. 2. Viðtöl voru tekin við móður hvers barns, þroskaþjálfa og kennara barn- anna og loks einn utanaðkomandi aðila. í viðtölum við móðurina var sóst eftir að fá túlkun hennar á því sem hún og barnið gerðu á myndbandinu í þeim tilgangi að fá hennar sjónarhorn á boðskiptin. I viðtali við þroskaþjálfa og kennara barnanna sem og utanaðkomandi aðila var sóst eftir mati þeirra á boðskiptum barns og móður samkvæmt þroskaprófílnum. í öllum viðtölunum voru myndbandsupptökurnar af hverju barni og móður þess lagðar til grundvallar og umræðurnar fóru fram á meðan horft var á myndbandið. 220