GUÐRUN STEFANSDOTTIR getur reynst að firtna breytingu í andardrætti og á spennu líkamans nema að hafa börnin í fanginu. í upptökunum mátti t.d. greina breytingar á andardrætti Finns, bæði þegar hann varð spenntur og þegar eitthvað skemmtilegt var að gerast. Þegar hann spennti höfuðið aftur til þess að horfa í Ijósið varð andardráttur greinilega örari og þegar hann var að einbeita sér við að hlusta virtist andardráttur hans verða hægari. I upptöku þar sem hann hlustaði á systur sína spila á píanó er eins og hann andi nánast í takt við tónlistina. Við þær aðstæður var hann mjög afslappaður. Hreyfingar. Þó að börnin séu öll mikið líkamlega fötluð kom fram í myndbandsgrein- ingunni að hreyfing gegnir mikilvægu hlutverki í boðskiptum hjá þeim öllum. Markviss merki sem börnin hafa yfir að ráða eru öll tjáð með hreyfingu; eitt barnið nuddar saman höndunum, annað notar tunguna, það þriðja spennir höfuðið aftur. Börnin gáfu lfka öll vísbendingar með hreyfingum um að þau þyrftu hlé frá því sem þau voru að fást við. Dísa heldur vel höfði og hefur nokkra stjórn á höfuðhreyfingum sínum. í upp- tökunum horfði hún í kringum sig, þó aðallega þegar mamma hennar fór í burtu. Hún lét höfuðið oft falla fram á við, sérstaklega þegar hún var í fangi mömmu sinn- ar. Hún gerði tilraun á tveimur stöðum í upptökunum til að færa hægri hönd að Dísa. Dæmi 1 Aðstæður: M. og D. skoða fyrst myndir og síðan bók Mamma Dísa 12. Ertu svolítið preytt eftir sundið, ertu sybbin, ertu svona þreytt? 14. Tekur í hönd Dísu. Ertu búin að sýna G. hringinn þinn. 16. Tekur um höndina og snertir hringinn. Hann er alveg rosalega flottur, rosalega flottur: 11. Geispar. 13. Geispar aftur. Horfir undan. Réttir hægri hönd í átt að mömmu. 15. Horfir niður, teygir höndina út. 17. Togar höndina að sér, færir höndina að kinn og snertir örlítið munninn, höfuðið leitar í hina áttina. Eins og hún reyni að færa hönd þannig að hún sjái hringinn. Munnurinn opnast og lokast, tungan út, hönd niður, horfir í átt að hringnum. Dísa hefur miklar ósjálfráðar hreyfingar og eins og sjá má af þessu dæmi eru hreyfimynstrin hjá henni afar tengd hvert öðru, t.d. þegar hún hreyfir höndina aukast munnhreyfingar. Svipbrigði. Á myndbandsupptökunum kom greinilega fram að börnin notuðu öll 127