GUÐRÚN STEFÁNSDÓTTIR nota augnaráðið. í upptökunum horfir Finnur oft í átt að ýmsum hlutum og fyrirbrigðum í umhverfinu og er athyglisvert að sjá hve mamma hans er vökul og fljót að túlka allt sem hann horfir á. Finnur. Daemi 4 Aðstæður: Kaffitími Mamma Finnur 19. ]á ég veit þérfimist Ijósið skemmtilegt. 21. ]á ég veit, þama er viftan. 24. Já þarna er G. að taka mynd. 18. Horfir í ljósið. 20. Aaaaaaa hljóð, bros. Horfir fram í ganginn. 22. Bros 23. Horfir í átt að upptökuvélinni. 25. Brosir breitt. Mæðurnar voru allar ótrúlega næmar á að gefa augnaráði barnanna merkingu og svöruðu nánast samstundis þegar börnin horfðu á eitthvað í umhverfinu. Bros. Á myndbandsupptökunum brostu öll börnin til mæðra sinna. Sjá má þegar börnin brosa að mæður þeirra bregðast strax við og svara börnunum. Samspilið er yfirleitt skýrast og kraftmest þegar þau brosa. Markviss merki. í myndbandsupptökunum má sjá að öll börnin höfðu yfir að ráða einhverjum markvissum merkjum en þau komu afar mismunandi fram og til þess að nema þau og skilja þurfti mikla reynslu og þekkingu á börnunum. Öll grétu þau eða gáfu frá sér einhver hljóð þar sem þau voru greinilega að kalla eftir mæðrum sínum. Finnur nuddar markvisst saman höndunum til marks um að hann vilji fá meira af einhverju. Oft er erfitt að vita hvað hann er að tjá en oftast beinist það annað- hvort að því að hann vill fá eitthvað að drekka eða að hann vill meira af einhverju sem honum þykir skemmtilegt. Upprunaleg merking þessa tákns hjá Finni var sú að hann lærði að nudda saman höndunum til að sýna að hann vildi róla, sem hon- um þykir skemmtilegt. Hann yfirfærði táknið sjálfur á fleiri aðstæður en oft er erfitt að vita hvað hann er að biðja um. Hann notar táknið markvisst til þess að tjá sig og ná tengslum við annað fólk í umhverfi sínu. Dísa notar tunguna markvisst þegar hún tekur þátt í samspili. Þó er afar erfitt að túlka þetta merki hjá Dísu en það virðist þó vera alveg skýrt að hún notar það í því skyni að eiga samspil við fólk. 129