BOÐSKIPTI MIKIÐ FATLAÐRA BARNA Dísa. Dæmi 3 Mamma Dísa 1. Hvar ertu með bókina? Já héma er bókin. 2. Tungan út. Dísa spennir höfuðið aftur. 3. Ha já, hérna. 4. Byrjar að lesa: Dísa hress og kát, var dugleg á skápúða og öllu. Hennifinnst LTG gott." Er það Dísa? Tekur um höku hennar. Já er það Dísa, ætlarðu að hafa það með aftur á morgun? 5. Tungan út, inn, út. 6. Mamma færir höfuð Dísu þartnig að hún horfir beint framan í hana, heldur áfram að lesa: Égþakka kærlega fijrir gjöfina segir H." 7. Tungan langt út. 8. Var hún svona mikið ánægð? Já há. 9. Tungan inn. 10. Fékkstu lasagna í hádeginu og banana með rjóma íeftirmat? 11. Tungan út, inn, út. 12. Eigum við að gá hvað þúvarst að gera hjá F? 13. Spennir sig aftur, tungan út. 14. Les: Allt gott aðfrétta hér. Viðfórum í sund og nudd." Færir andlit alveg að Dísu. 15. Augnaráð - lítur undan, tungan út, inn, hreyfir tunguna. 16. Já mamma vissi það. Var svona gaman, varstu dugleg að synda, líka í nuddinu? 17. Tungan út, kiprar varirnar, horfir beint á mömmu, hreyfir sig. 18. Les: Gekk mjög vel, var algjörlega afslöppuð." 19. Eins og kíkir í átt að bókinni (augnaráð), tungan út. Á þessu dæmi má sjá hversu tunguhreyfingar Dísu stjórna miklu í samspili hennar og mömmu. I myndbandsupptökunum spennir Axel handleggina og um leið þrýstir hann höfðinu aftur. Þetta er eina merkið sem hann virðist nota markvisst sem svar við samspili. 130