BOOSKIPTI MIKIÐ FATLADRA BARNA barnanna í boðskiptunum og meta um leið notagildi hans. Farin var sú leið hér að nota flokkana sem hann gerir ráð fyrir. Niðurstöður rannsóknarinnar benda ótvírætt til að gagn sé að því að nota þá flokka sem prófíllinn byggir á og að þeir henti sem viðmið við mat á boðskiptum mikið fatlaðra barna. Þessir flokkar eru: nánd, könnun, félagslegt samspil og boðskipti. I niðurstöðum kom fram að erfiðast reyndist að meta könnunaratferli hjá börnunum. Prófíllinn gengur út frá daufblind- um börnum en ekki eins mikið fötluðum börnum og þeim sem þátt tóku í rann- sókninni. í niðurstöðum úr viðtölum við kennara og þroskaþjálfa barnanna sem og utanaðkomandi aðila kom skýrt fram að það hefur mikil áhrif. I öllu því sem gert er með daufblindum þarf að höfða mest til snertingarinnar vegna þess að þau börn hafa hvorki sjón né heyrn en oftast nær töluverða hreyfifærni. Mikið fötluð börn hafa hins vegar oft annaðhvort einhverja sjón eða heyrn en eru mikið líkamlega fötluð. Kann það að vera ástæðan fyrir því hversu erfiðlega gekk að meta könnun- aratferli barnanna. Þau geta ekki kannað umhverfi sitt og sína nánustu á eigin spýtur sökum hreyfihömlunarinnar en geta hins vegar oft nýtt sjón og heyrn í þess- um tilgangi. Einnig kom í ljós að viðmiðin innan flokkanna í prófílnum eru enn alltof gróf til þess að hægt sé að nota þau ein og sér fyrir mikið fatlaða. Sérstaklega tiltóku viðmælendur mínir boðskiptin og töldu þann flokk styst á veg kominn í vinnslu. Fræðilegur grunnur þroskaprófílsins byggir á ungbarnarannsóknum og jafn- framt á þekkingu um afleiðingar fötlunar. í fyrri rannsóknarspurningu þessa verks er byggt á þeim viðmiðum sem komið hafa fram í ungbarnarannsóknum og þau notuð sem greining á boðskiptum barnanna við mæður þeirra. í síðari spurning- unni eru þau viðmið sem prófíllinn byggir á lögð til grundvallar. Samkvæmt niður- stöðunum henta þeir flokkar sem prófíllinn byggir á vel til að meta boðskipti mikið fatlaðra barna. Hins vegar eru einstök viðmið ekki nægilega nákvæm og tel ég að vel megi nýta betur þau viðmið sem stuðst var við í myndbandsgreiningu á boð- skiptum barnanna og mæðra þeirra. Afar erfitt hefði reynst að meta boðskipti barn- anna samkvæmt þroskaprófílnum án þess að styðjast við þá greiningu sem áður hafði farið fram. Niðurstöður rannsókarinnar benda því til að sú aðferð sem hér var beitt sé í heild sinni gagnleg í því skyni að meta boðskipti mikið fatlaðra barna. Starfsmervn sem þátt tóku í rannsókninni höfðu allir langa reynslu af störfum með börnunum og auk þess faglega þekkingu á boðskiptum. Er það að mínu mati forsenda þess að geta metið boðskipti barnanna. Enn og aftur má líka benda á að nauðsynlegt er að hafa foreldra með í ráðum til þess að rétt mynd fáist Eins og fram hefur komið voru myndbandsupptökur sá grunnur sem allir þættir þessarar rannsóknar hvíla á. Notkun myndbands tel ég nánast forsendu ef unnt á að vera að greina og meta boðskipti mikið fatlaðra barna. Boðmerki barn- anna eru oft afar óljós, þau fara auðveldlega fram hjá þeim sem þau beinast að. Sú aðferð sem notuð var við greiningu á myndbandsupptökunum hentar vel til að meta boðskipti mikið fatlaðra barna. Áhugavert væri að þróa þessa aðferð áfram og gera hana aðgengilegri. 138