SIGURÐUR KRISTINSSON KENNING OG STARF I STARFSMENNTUN Skólar og námsbrautir setja sér stundum það markmið að búa nemendur undir starfá til- teknum vettvangi. Þegar þetta er meginmarkmiðið með skipulagi náms og kennslu má segja að stefnt sé að starfsmenntun í tilteknu fagi fremur en almennri menntun. ]afnframt verður hlutur verklegrar þjálfunar gjarnan meiri, enda er stefnt að því að nemendur læri til verka á tilteknu sviði atvinnulífs. í þessari grein verður leitað svara við því hvaða grundvallarsjónarmið megi hafa til hliðsjónar þegar lagt er mat á tengsl kenningar og starfs í starfsgreinanámi. í þessu skyni verður fyrst hugað að merkingu hugtaksins starfsmenntun og tengslum hennar við al- menna menntun. Hugtakið starfsmenntun verður ekki skoðað í sögulegu Ijósi, heldur frá tímalausu", heimspekilegu sjónarhorni, ef svo mætti segja, meðal annars með þeirri gamalreyndu aðferð að endurbæta tilraunir til skilgreiningar í Ijósi gagndæma. Athyglinni verður einnig beint að fagmennskuhugtakinu, en í Ijósi /jess verða færð rok fyrir því að bóklegur lærdómur í starfsgreinanámi þjóni meðal annars þeim tilgangi að efla siðferðilega dómgreind og vega upp á mótiþröngri tæknihugsun.1 HVAÐ ER STARFSMENNTUN? Hugtakið starfsmenntun mætti e.t.v. skilgreina á eftirfarandi hátt. (i) Starfsmenntun er það sem nemendur læra á námsbrautum sem veita starfsréttindi. Þessi skilgreining er gölluð ef hægt er að finna sannfærandi gagndæmi við hana. Með gagndæmi er átt við dæmi sem leiðir í ljós misræmi á milli skilgreiningar og þess sem reynt er að skilgreina. Gagndæmi geta verið tvenns konar. Annars vegar eru dæmi um hlut eða fyrirbæri sem fellur ekki undir skilgreininguna en virðist engu að síður (að athuguðu máli og af dómbærum aðilum) vera af þeirri tegund sem ætlunin var að skilgreina. Ef hugtakið bíll, svo dæmi sé tekið, er skilgreint sem bensínknúið farartæki er nóg að benda á díselbíl og þar er komið gagndæmi. Hins vegar eru dæmi um hlut eða fyrirbæri sem fellur undir skilgreininguna en virðist engu að síður (að athuguðu máli og af dómbærum aðilum) ekki vera af þeirri teg- und sem ætlunin var að skilgreina. T.d. ef hugtakið bíll er skilgreint sem bensín- knúið farartæki er nóg að benda á bensínknúið bifhjól og þar er komið gagndæmi. Gagndæmi við skilgreiningu (i) á starfsmenntun gæti verið nemandi sem fer í gegnum námsbraut sem veitir starfsréttindi, en stundar námið illa og lærir nánast 1 Þessi grein er að stofni til fyrirlestur sem höfundurinn flutti á starfsdegi Kennaraháskóla Íslands á Laugarvatni 20. október 2000. Uppeldi og menntun - Tímarit Kennaraháskóla Islands 9. árg. 2000 i4í)