Ægir - 01.03.1928, Blaðsíða 3
ÆGIR.
MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS.
21. á
arg.
Reykjavík —■ Mars 1928.
Nr. 3.
„Jón forseti" strandar.
Eitt af hinum hörmulegustu sjóslysum hjer.
1 aðfaranótt mánudags 27. febrúar,
e®a þar um bil, strandaði togarinn „Jón
f°rseti“ á Stafnesi. Er það rétt hjá Staf-
Nesvita. Er þar að allra sögn einhver
^inn versti og hættulegasti staður hér á
'andi, fyrir skip, sem stranda. Rifið er
langt frá landi og er þar sífelt brim þótt
sJór sje hægur annarsstaðar. En að þessu
s'nni var brim mikið.
^kipið var að koma vestan úr Jökul-
'ijúpi og ætlaði suður á Selvogsgrunn.
i'iniið fór vaxandi með flóðinu, og
gfengu brotsjóir yfir skipið hver á fætur
öðruni. Reis skipið nokkuð að framan, og
leituðu hásetar sér skjóls frammi undir
-hvalbak”. Skipið sendi út neyðarskeyti
°g varð fyrsta skipið á vettvang „Tryggvi
gamli“. Kom það þangað kl. 6 um morg-
Uninn. Var þá niðamyrkur, svo dimt að
” Fryggvi gamli“ sá skipið alls ekki, fyi’ en
fór að birta, eða um klukkan 7%-
Komu nú þarna smám saman fleiri
skip, togarinn „Ver“ og „Hafstein“, en
gátu enga björg veitt mönnuin um borð
í „Jóni forseta“. Litlu seinna kom björg-
unarskipið „Þór“ einnig á vettvang og 2
bátar frá Sandgerði, mannaðir mönnum,
sem eru gjörkunnugir á þessum slóðum.
Allan daginn, fram í myrkur var björg-
unartilraunum haldið áfram af mesta
hetjudug og dugnaði. En brotsjóirnir slitu
sjómennina af skipinu, einn á fætur öðr-
um, án þess við yrði ráðið. Þegar fram
á daginn kom sáu skipin, sem þarna voru,
að þau fengu ekkert að gert og týndust
burtu srnám saman. — Eitt hið seinasta,
er fór af vettvangi, var „Tryggvi gamli“.
Kom hann hingað um kvöldið klukkan
10 og flutti hingað lílc 5 manna, af skips-
höfn „Jóns forseta“, sem höfðu fundist á
reki framundan skerinu, sem hann strand-
aði á.