Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1941, Blaðsíða 3

Ægir - 01.07.1941, Blaðsíða 3
Æ G I R MANAÐARRIT fiskifélags islands 34. árg. Reykjavík — júlí 1941 Nr. 7 r Fiskveiðasjóður Islands. MeÖal flestra menningarþjóða licims- ins liefir það mjög tíðkazt um langan aldur að styrkja og tryggja eðlileg vaxt- arskilyrði atvinnuveganna með ýmsu móti. Þessi stuðningur hefir verið á ýmsa lund, allt eftir þvi hvað tiltækilegt og heppilegast liefir þótt á hinum ýmsu stöðum. Sumstaðar hefir gætt phkillar framsýni og umíbótahugs i þessum efn- um, og framkvæmdir til eflingar at- vinnuveganna farið þar eftir, en annars- staðar liafa hinar kröppu öldur örðug- leikanna orðið mönnum hinn eini átta- viti að þessu leytinu, og þar þefir því orðið seinvirk þróun eða jafnvel stöðnun. Hj á oss Islendingum hefir stuðningur við atvinnuvegina verið á ýmsan hátt, stundum enginn eða næsta lítilvægur og stundum svo að um hefir munað. Lang- samlega oftast liefir þessi stuðningur verið ákvarðaður af löggjafarvaldinu, en framkvæmdarvaldið séð um dreifingu hans til hinna stuðningsliæfu aðila. Þess er tæipast að vænta, að Islendingar standist samanburð í þessum efnum við þær þjóðir, er öldum saman hafa verið sjálfstæðar, þar sem þeir hafa aðeins haft sjálfsforræði í tiltölulega stuttan tíma. En þótt svo sé, ber löggjöf Isl. síðustu tvo áratugi það með sér, að reynt hefir verið með ýmsu móti að tryggja framþróun atvinnuveganna, en hvort sú viðleitni stefnir i rétta og örugga átt verð- ur reynslan og framtíðin að slcera úr. Hér er hvorlci rúm né staður til að rekja þann opinbera stuðning, sem at- vinnuvegunum hefir almennt verið veitt- ur hér á landi, og verður því, eins og yfirskrift þessarar greinar gefur til kynna, aðeins minnst á eitt atriði í þess- um efnum. Árið eftir að framkæmdarvaldið flutt- ist inn i landið, eða 10. nóv. 1905, var Fiskveiðasjóður Islands stofnaður með lögum. Sjávarútvegurinn var þá orðinn allveigamikill þáttur i atvinnulífinu, og sýnilegt var, að hann mundi þá á næst- unni færa óðfluga út kvíarnar. Skútu- öldin var þá á blómaskeiði, en ýmislegt benti þó til þess, að úr þvi mundi draga á nælstunni, þvi að öld véla og nýrrar veiðitækni var þá fyrir nokkru hafin erlendis, og tekið var að brydda á áhrif- um ]iess hér á landi. Þeir, sem sömdu fiskveiðasjóðslögin i uppliafi, virðast liafa rennt grun í livert stefna mundi á næstunni, og því látið þau sjónarmið ráða nokkru, hversu frá þeim var geng- ið. En þótt svo hafi verið, virðist senni- lega flestum nú, að þannig hafi verið að Fiskveiðasjóði húið í uppliafi, að ekki hafi mikils mátt af honum vænta, og

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.