Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1941, Blaðsíða 10

Ægir - 01.07.1941, Blaðsíða 10
180 Æ G I R Þegar stofna átti franska fiskimannanýlendu á íslandi. Þegar fiskveiðisaga íslendinga verður skráð, mun eflaust verða rakin þar allnáið þau afskipti, er erlendir fiskimenn, sem hér hafa stundað veiðar, hafa haft af landi og þjóð. Ég hygg, að flesium, sem nokkuð hafa kynnt sér þau efni, finnist kenna þar margvíslegra grasa. Og margt er þar með þeim hætti, sem nútímamönnum og þái sérstaklega yngri kyn- slóðinni, muni þykja nýlunda að kynnast. Eflaust hefir engin fiskveiða- þjóð haft jafn mikið saman við tslendinga að sælda og Frakkar, enda mun engin þjóð hafa stundað veiðar hér við land á jafn mörgum skip- um og þeir. Sem dæmi þess, lwe fiskveiðar Frakka voru hér í stórum stíl, mái geta þess, að áirið 1895 voru við veiðar hér við land 225 frönsk fiskiskip, er voru að meðaltali 90 rúmlestir. Á þessum skipum voru 4 252 franskir fiskimenn. Ekki er ætlunin að rekja hér viðskipti [ranskra fiskimanna við íslendinga, heldur aðeins að drepa lauslega á eitt atriði, sem ekki einungis vaklj geipilega atluygli liér á landi heidur og víðar um lönd. Árið eftir að verzlunin var nieð öllu gefin frjáls hér á landi, eða sumarið 1855, kom fyrirspurn til Alþingis um, hvort Frökkum mundi leyft að stofna fiskimannanýlendu hér á landi. Fyrir- spurn þessi kom frá B. Demas, en hann hafði yfirumsjón með öllum frönskum skipum, er veiðar stunduðu við Island. Þessi bón var fram borin fyrir áskorun ýmsra útgerðarmanna og kanpmanna i Frakklandi, einkum í Dunkerque. Út- gerðarmenn í Dunkerque höfðu um nokkurt skeið gert út 100—120 skip árlega Iiingað til veiða, og höfðu um gullbrúðkaup á siðastl. vori, og var þess jninnst að maklegleikum. Framan af ævi stundaði Kristmann sjómennsku og verzlunarstörf, en varð síðar fiskimatsmaður. Það eru almæli, að liann hafi stundað öll störf sín með frá- bærri kostgæfni og samvizkusemi. Þjóð- félags- og menningarmál lét hann sig miklu skipla, þótt ekki væri hann hávaðamaður, eða kærði sig um að standa' þar í fylking, sem mest hæri á lionum. Bindindismálum landsins lagði hann mikið liðsinni og reyndist þar sem annarsslaðar traustur og einlægur. Mcð Kristmanni er fallinn i valinn einn af liinum hljóðlátu mönnum, sem skilað hafa af hendi miklu og nýtu dagsverki. Akranes á þar að haki að sjá einum af sínum elztu og heztu sonum, er það mun lengi minnast að góðu einu. Báðir þessir menn, er hér að framan Iiefur örlítið verið greint frá, hafa um langt skeið annast skýrslusöfnun og önn- ur störf fyrir Fiskifélagið, hvor í sínu byggðarlagi. Verk það leystu þeir af hendi með mikilli lipurð og samvizku- semi, og vill félagið hér með votta þeim þakklæti sitt fvrir unnin störf í þágu þess, þótt þeir séu nú háðir gengnir.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.