TIMARIT LÓGFRÆÐINGA 1. heftij marz 1951 Það getur varla talizt vanzalaust af íslenzkum lögfræð- ingum, að þeir skuli ekki fyrir löngu hafa stofnað tímarit um lögfræðikg efni á sama hátt og ýmsar aðrar stéttir, sem þó eru fámennari í þjóðfélaginu, hafa gert, um sínar fræðigreinar. Tilraun í þessa átt var gerð árið 1923 af lögfræðingum og hagfræðingum í sameiningu, en því miður hætti það rit að koma út eftir 2 ár, vegna þess að menn gáfu sér ekki tíma til þess að skrifa í það. Lögmannafélag Islands hefur nú, eftir alllangan undir- búning, ráðizt í að gefa út þetta tímarit og tekizt á hendur fjárhagslega ábyrgð á því. Hefur dr. juris Einar Arnórs- son fyrrv. hæstaréttardómari tekið að sér ritstjórn þess með aðstoð nefndar, sem þeir dr. ólafur Lárusson pró- fessor, Árni Tryggvason hæstaréttardómari og Theodór B. Líndal hrl. hafa góðfúslega tekið sæti í. Ritið er* þannig í höndum hinna beztu manna. En þó svo sé fyrir að þakka, mun rit þetta ekki frekar en fyrri tilraunir með lögfræðileg tímarit verða til upp- byggingar og langlíft í landinu. nema lögfræðingar yfir- leitt taki því opnum örmum, ekki aðeins með því að kaupa það og auglýsa í því, heldur með því að senda því ritgerðir um áhugamál sín í lögfræðilegum efnum. Heitir stjórn Lögmannafélags Islands á alla lögfræðinga, hvaða stöðum sem þeir gegna í þjóðfélaginu, að slá skjald- borg um rit þetta og forða því frá þeim dauða, sem er öllum dauðdaga óvirðulegri fyrir blað heillar stéttar hordauðanum. STJÓRN LÖGMANNAFÉLAGS ISLANDS Lárus Jóhannesson Ágúst Fjeldsted Egill Sigurgeirsson formabur ritari gjaldkeri 1