Eggert Claessen, hæstaréttarlögmaður In memoriam Eggert Claessen var fæddur í Grafarósi 16. ágúst 1877 og var hann því 73 ára gamall, er hann andaðist, 21. október 1950. Foreldrar hans voru Valgard Claessen, kaup- maður og síðar landsféhirðir, og Kristín Eggertsdóttir sýslumanns Briems. Stóðu þannig að honum merkar ættir og þjóðkunnar. Hann tók stúdentspróf við Lærða skólann í Reykjavík 1897 og embættispróf í lögum við Hafnar- háskóla 1903, hvorttveggja með hárri I. einkunn. Gerðist hann 1904 fulltrúi í f jármáladeild Stjórnarráðsins og yfir- dómslögmaður 1906. Lögmannsstörfin urðu brátt umfangs- mikil. Hann lauk prófi hæstaréttarlögmanna 1920, en 1921 varð hann bankastjóri Islandsbanka og gegndi því starfi til 1930. Þá hóf hann á nýjan leik lögmannsstarfsemi sína og hélt hann henni áfram síðan til dauðadags. Hann var einn af forgöngumönnunum að stofnun Eimskipafélags Islands h/f, og var kosinn í stjórn þess félags á stofnfundi 17. jan 1914 og sat í stjórn félagsins upp þaðan, frá 1926 sem formaður. Hann gekkst fyrir stofnun Vinnuveitenda- félags Islands 1934 og var framkvæmdastjóri þess, meðan hann lifði. Eggert Claessen var almennt viðurkenndur sem fjár- málamaður. Þó vissu það allir, að hann var enginn spá- kaupmaður. En hann var traustur maður og vandaður og skarpskyggn á fjármál sem annað. Það var því eðlilegt, að honum væru falin trúnaðarstörf á því sviði, hvert af öðru. öllum ber saman um, að hann hafi rækt með ágætum formannsstarfið í Eimskipafélagi Islands h/f. Sama var um starf hans sem framkvæmdastjóra Vinnuveitendasam- bands Islands. Döfnuðu þessi félög og blómguðust, hvort á sinn hátt, undir öruggri handleiðslu Eggerts Claessens. Enginn mun heldur nú draga í efa, að hann gerði allt, sem í hans valdi stóð, til að rétta hag Islandsbanka. Það