Eggert Claessen, hstaréttarlögmaSur tókst að vísu ekki. Olli því það tvennt, að Islandsbanki var fjárhagslega sligaður, er Eggert Claessen tók við, svo og hitt, að bankinn var á þeim tíma stjórnmálalegt bitbein. Sjá það nú allir, að við svo búið var það hverjum manni ofraun að bjarga bankanum. Það, sem framar öðru snýr að lögmannastéttinni, eru lögmannsstörf Eggerts Claessens. Hann gerðist brátt for- ustumaður meðal stéttarbræðra sinna og þeir Sveinn Björnsson báðir. Fyrir þeirra forgöngu var stofnað Mál- flutningsmannafélag Islands, sem nú heitir Lögmanna- félag Islands. Þetta var 1911 og er félagið því fertugt á þessu ári. Var Eggert Claessen formaður félagsins 1911 1918 og 19391940. Stofnun félagsins var táknræn um umgengnisvenjur lögmanna. Á undan þeim Eggert Claes- sen hafði samvinna lögmanna verið mjög í molum og ber dómasafn Yfirdóms glögglega vitni þess. Þetta breyttist smátt og smátt í það horf, sem vér nú þekkjum, að lögmenn vilja hver annars götu greiða. Oft undraðist ég það, hve vel Eggert Claessen lét að umgangast yngri stéttarbræður sína, þótt aldursmunur væri stundum mikill. Hann um- gekkst þá sem jafningja. Hitt var eðlilegt, að allir skoðuðu hann sem Nestor stéttarinnar. Mestu varðaði þó að sjálfsögðu hitt um lögmannsstörf Eggerts Claessens að hann var snjall lagamaður, en jafn- framt samvizkusamur og vandvirkur, svo að af bar. Fékk því hver maður traust á honum, sá er til hans leitaði. Vissi ég og engan verða fyrir vonbrigðum, þann er bað hann að ljá sér lið. Það sagði við mig ritstjóri þessa tímarits skömmu eftir andlát Eggerts Claessens, að engan myndi hann hafa kosið sér sem málsvara honum fremur, ef hann hefði átt hendur sínar að verja fyrir dómstólum hér á landi. Eggert Claessen var maður fluggáfaður. Fóru þar saman góðar námsgáfur, traust minni og örugg dómgreind. Hann var þrekmenni, viljafastur, einarður og hreinskilinn. 1 málflutningi var hann kappsamur og öruggur bardaga- maður, hvort sem var fyrir dómi eða á öðrum vettvangi.