10 ______ Tímarit lögfraSinga Þá erfa bræður eða systur afrleifanda eða bróður eða systurbörn hans. Hér þrýtur erfðir í þessa línu. Nær erfða- rétturinn því eigi nema til ættingja arfleifanda að fyrsta og öðrum (arfleifandi og systur eða bróðurbarn hans). Kjörsystkin arfleifanda eða kjörbarn systkina hans koma hér víst ekki til greina. Um arf eftir kjörbörn er mælt í 18. gr. laganna. Niðjar þeirra erfa þau að sjálfsögðu fyrst, en að þeim frá gengn- um erfa kjörforeldrar eða að þeim látnum börn þeirra kjörbarn, en þó ekki hærri upphæð en kjörbarn hafði þegið að arfi eða gjöf frá kjörforeldrum. Ef kjörbarn hefur ekkert þegið, þá erfir kjörforeldri eða niðjar þess ekkert eftir kjörbarn. Það, sem kjórforeldri eða börn þess erfa ekki, verður arfur ættingja kjörbarns með sama hætti sem annars er mælt um erfðarétt ættingja. Numio er hér staðar við börn kjörforeldris. Barnabörn kjörforeldris tekur því ekki arf eftir kjörbarn. Þann arf eftir kjörbarn, sem ekki rennur til kjörforeldris eða barna þess, taka ætt- ingjar kjörbarns með sama hætti sem ættingjar taka eftir frændur sína. En ef kjörbarn á engan arfgengan ættingja á lífi, þá taka kjörforeldrar eða börn þeirra en eigi firnari niðjar allan arf eftir það. 3. 1 þriðja erfðaflokk koma afar og ömmur arfleifanda, 6. gr. laganna. Þau standa auðvitað að baki öllum þeim, sem arfgengir eru í 1. eða 2. flokki (niðjum og kjörniðj- um", foreldrum ins látna. systkinum og börnum þeirra). Arfur skiptist þá jafnt milli föðurforeldra ins látna og móðurforeldra. En ef afi eða amma eru annaðhvort eða bæði látin, þá gengur arfshluti þess eða þeirra til barna þeirra (föður eða móðursystir arfleifanda). Hér ganga erfðir einungis til frænda arfleifanda að fyrsta manni og öðrum. Ef bæði t. d. móðurforeldra eru látin og börn þeirra, rennur allur arfurinn til föðurforeldra eða barna þeirra, 6. gr. laganna. Erfðaflokkana má sýna í töfluformi þannig: