Nokkur orS um crftjarétl l\ Afar, ömmur Foreldri Arfleifandi Börn (kjörbörn) Barnabörn (kjörbarnabörn) Barnabarnabörn (kjörbbb.) Eins og sjá má, er frændsemiserfð þrengd mjög frá því, sem í tilskipun 25. sept. 1850 var mælt. Langafar og lang- ömmur og þriðja hliðarlína er með öllu felld úr erfðatali. Og erfðarétti í fyrstu og annarri hliðarlínu lýkur á frænd- um arfleifanda aS fyrsta og öðrum manni. Vafalaust eru þessar breytingar fullkomlega réttmætar og til mikilla bóta. Fyrir þær verður verk skiptaráðanda miklu auðveld- ara en áður var, þar sem stundum sk^'Idi skipta milli f jöl- margra úterfinga, og fékk þá hver einatt lítilræði, sem hann munaði lítið eða ekkert um. B. Hjú$lcaparerf8. Það hjóna, er lengur lifír, erfir nu, sem áður, fjórðung eigna látins maka síns, ef hann á á lífi niðja, kjörbarn eða niðja þess. Ef hann á fjarlægari erf- ingja (þ. e. erfingja í 2. eða 3. erfðaflokki), þá erfir maki helming. Ef enginn erfingja þessara er til, þá erfir maki allt, 7. gr. erfðalaganna. Er hér gerð nokkur breyting á ákvæðum 88. gr. laga nr. 20/1923. Samkvæmt þessari grein eríði maki helming eigna á móts við foreldra látins maka síns eða systkin sín, eða niðja þeirra. Afi og amma látins maka og niðjar systkina foreldra hans komu alls ekki til greina til arfs á móti maka eftir lögum 1923, en nú takmarka afar og ömmur og börn þeirra erfðarétt maka. Maki erfir einungis jafnt við þessa ættingja látins maka síns. Hins vegar takmarka nú einungis foreldrar og systrkin látins maka og börn þeirra erfðarétt maka, en barnabörn sj^stkina hans eða fjarlægari niðjar koma ekki til greina, og verður kostur makans að því leyti betri en