12________________________Tímarit lögfræöinga áður var. Lítil ástæða virðist vera til þess, að láta föður- eða móðursystkin látins maka eða bróður eða systur- börn hans takmarka erfðarétt maka. Kjörbörn koma víst ekki hér til greina. C. BréferfS. Svo hefur sú erfð verið nefnd, sem á stoð sína í yfirlýsingu arfleifanda, sem jafnan skal vera bréfuð. Voru allrækileg fyrirmæli um þessa erfðategund í til- skipun 25. sept. 1850, svo sem kunnugt er. Nú eru fyrir- mælin um þetta efni í III. kafla inna nýju erfðalaga. Sá, sem hvorki á mafca né niðja en þar til teljast Víst kjör- börn og niðjar þeirra, sem í 18. gr. sbr. 3. og 6. og 7. gr. laganna, eru settir á bekk með niðjum arfleifanda má ráðstafa öllum eignum sínum eftir sinn dag með erfða- gerningi. En ef hann á niðja á lífi, þá má hann einungis ráðstafa þannig fjórðungi eigna sinna, eins og áður var. Ef bæði niðjar og maki skulu erfa saman, mun þessi regla taka einnig til arfhluta makans, því að heimilt er að ráð- stafa helming eigna, ef enginn niðja er á lífi, en maki er lifandi, 20. gr. laganna. Ef nú t. d. foreldrar arfleifanda standa til erfðar eftir hann mað maka hans, þá getur hann ráðstafað 2/4 eigna sinna. Þá eru eftir 2/4, sem skiptast jafnt milli maka og foreldra, og maki fær þá V4 og for- eldrar y4. Þegar svo stóð á, gat arfleifandi eftir 88. gr. 1. nr. 20/1923 ekki lækkað með erfðaskrá arfhlut maka síns meira en niður í x/3 hluta eigna sinna. Maki erfði þá, ef engin erfðaskrá var gerð, 3/6 eigna maka síns, en arfleif- andi hefur þá mátt ráðstafa i/e þessa hluta, og verða þá eftir 2/6 eða V3 allra eigna makans, sem eftirlifandi maki hans fær. Hlutur maka getur því orðið með þessum hætti sýnu lakari eftir nýju erfðalögunum en hann mátti verða eftir 88. gr. laga nr. 20/1923. Er víst torfundin ástæða til þessa, sérstaklega af því að erfðaréttur maka takmarkast nú af erfðarétti afa og ömmu og barna þeirra, andstætt því, sem áður var. D. Loks rennur arfur í ríkissjóð, ef 1. Arfleifandi á engan lögmæltan erfingja samkvæmt AC hér að framan og hefur ekki heldur ráðstafað fé