___________Þjófamark (brennimark) samkvæmt íslenzkum lögum_________27 1. Tveggja marka stuldur framinn fyrsta sinni varðaði, auk refsingar" (húðláts), missi alls lausafjár. En ef aðili átti í jörðu, þá skyldi virða til 13 marka. Ákvæði þetta er allóskýrt. Má sjálfsagt bæði skilja það svo, að allt af skyldi virða konungi 13 merkur úr jörð eða svo, að það skyldi því aðeins gert, að aðili ætti ekki lausafé til 13 marka. Þjófur, sem erft hefði t. d. 5 hundruð í jörð, hefði þá fyrir- gert henni til konungs, ef lausafé var ekki til 13 marka. En víst hefur sjaldan til slíks komið, með því að aðili hefur sjaldnast átt fasteign. Brennimarks er ekki getið sérstak- lega. Mætti vera, að mátt hafi telja það til refsingar." 2. Tveggja marka stuldur öðru sinni varðaði dauðarefs- ingu, sem framkvæmd var eins og áður segir, enda skyldi aðili þá hafa fyrirgert öllum eignum sínum. Ákvæði Jónsbókar Þjófab. 1. kap. eru um margt heldur ófullkomin, enda að sumu óheppileg að skoðunarhætti nú- tímamanna. Inn skarpi greinarmunur milli þjófnaðarteg- unda eftir verðmæti inna stolnu muna mundi nú vera nefndur blátt áfram vitleysa. Stuldur til hálfrar sjöttu álnar þarf t. d. auðvitað ekki að vera miklu ósaknæmari en stuldur til 6.álna (eins eyris). Samskonar má segja um t. d. stuld til 7 aura og stuld til einnar merkur og stuld til tæpra tveggja marka og stuld til fullra tveggja marka. Þá þykir mönnum nú fráleitt að binda refsingar fyrir brot svo mjög sem gert er í Þjófab. 1. kap., eins og víðar í lögum þeirra tíma, og reyndar lengi síðan var gert. Sektir eru alveg lögbundnar víða, svo að engu verður um þokað til hækkunar eða lækkunar eftir ástæðum hverju sinni. Húðlátsrefsingin er ið eina, sem dómendur geta látið fara nokkuð eftir atvikum. Ákvæðin um brotin sjálf og ítrekun brota eru allglopp- ótt. Ekkert segir um það, hvort leggja megi saman verðmæti, er maður hefur stolið í fleira en einu lagi, svo að þau samanlögð nemi eyri, einni mörk eða tveim- ur. Ef A hefur t. d. stolið til 2 álna á staðnum x, til 3 álna á staðnum y og loks til 2 álna á staðnurc z, alls til 7 álna, þá vantar fyrirmæli um það, hvort það