38_____________ Tímarit lögfræöinga þrisvar verið brennimerktur, en nú er ekki ákveðið, hvar markið skuli sett á hann. Og síðan skyldi sökunautur sendur á Brimarhólm til að ganga þar í járnum og þræla þar, meðan hann lifði, N. L. 61736. Um stórþjófnað fór þannig: 1. Fyrsta sinni framinn varðaði hann hýðingu við staur og brennimerkingu á enni, N. L. 61737. 2. Ö5ru sinni framinn varðaði stórþjófnaður sömu refs- ingu og smáþjófnaður framinn fjórða sinni, N. L. 617 38. Nokkrar tegundir þjófnaðar voru taldar sérstaklega refsiverðar (furtum qualificatum) og þá var refsað svo sem fyrir stórþjófnað eða enn harðara, jafnvel þótt verðmæti þýfisins leiddi ekki allt af til þess. Sá, er brotizt hafði úr járnum og síðan stal, skyldi vera hengdur, N. L. 617 39. Stuldur úr læstri hirzlu í kirkju varðaði dauðarefs- ingu, en annars sem stórþjófnaður öðru sinni framinn, N. L. 6164. Þjófnaður framinn með innbroti í læst hús var almennt talinn stórþjófnaður, og stuldur af skip- brotsmönnum hefur verið talinn nvjög illkynjað þjófnaðar- brot. Þegar dæma skyldi þjófnaðarbrot, þá hefur víst venju- lega oltið á því, hvert það brot var, sem þá skyldi um dæma. Stórþjófnaður framinn fyrsta sinni hefur ekki orðið harðax-a metinn en stórþjófnaður framinn fyrsta sinni, þótt sökunautur hefði áður verið dæmdur fyrir smá- þjófnað einu sinni eða tvisvar, en ef hann hefur þrisvar áður verið dæmdur fyrir smáþjófnað, þá hefur hann sjálf- sagt fengið hörðustu refsinguna fyrir smáþjófnað, sem var jafnhörð og refsing fyrir annað sinn framinn stór- þjófnað. Sá, sem framið hafði stórþjófnað fyrsta sinni, en verður síðan sekur um smáþjófnað, hefur fengið refs- ingu fyrir smáþjófnað öðru sinni framinn, hýðingu við staur og brennimark að líkindum á bakið. Ekki segir, hvort dómur skyldi hafa gengið um fyrra brot, áður en ið síðara var framið, til þesa að fyrra brotið hefði ítrekunarverkun á ið síðara. En bráðlega mun svo