SkaSabótaábyryS í aambundi viö bifreiöardrátt____________61 tekur að sér drátt hennar í greiðaskyni. Ef stjórnandi dráttarbifreiðar veldur þá tjóni á dregnu bifreiðinni eða mönnum á henni eða farmi, þá er athugandi, hvort eigandi dráttarbifreiðarinnar sé ábyrgur um tjón það. Þegar má taka það fram, að sérregla 1. málsgr. 34. gr. bifrl. um sönnun tekur ekki til skaðabóta á hendur bif- reiðareiganda, með því að hæstiréttur telur hana ekki gilda í skaðabótamáli á hendur stjórnanda dráttarbifreiðar, svo sem áður er sagt. Samkæmt 1. málsgr. 35. gr. bifrl. ber eigandi bifreiðar ábyrgð á henni og er skaðabótaskyldur samkvæmt 3A. gr." Nú skal skrá bifreiðar, og segir bifreiðaskrá til um eignar- réttinn. Bæði ríkisvaldið og einstakir menn geta haldið sér að þem aðilja, sem skráður er eigandi, jafnvel þótt annar maður sé það í raun réttri, hvort sem um skaðabætur eða annað en refsingu er að tefla. Undantekning frá reglu þessari um skaðabótaábyrgð eiganda er þó gerð í 2. málsgr. 35. gr. bifrl., ef maður notar bifreið annars manns í heim- ildarleysi. Glöggt dæmi þessa er bifreiðarstuldur eða grip- deild. Einnig hér skiptir það miklu um sönnunarbyrði, ef stjórnandi dráttarbifreiðar stendur skráður stjórnandi hennar, þeg*ar slys verður. Þá verður eigandi að sanna heimildarbrest bifreiðarstjórans (sbr. Hrd. I. 587), enda mega önnur atriði verka á sama hátt, t. d. ef sýnt er, að eigandi hefur tekið við greiðslu fyrir þann akstur, sem bifreiðarstjórinn hefur framkvæmt, o. s. frv. En ef það kemur upp, að bifreiðarstjórinn hefur ekið bifreið í heim- ildarleysi eiganda fyrir annan mann, þá flytzt skaðabóta- ábyrgðin yfir á þann mann. Hann er þá notandi bifreiðar- innar. Með því að in stranga sönnunarregla 34. gr. um skaða- bótaábyrgð á tjóni af völdum stjórnanda bifreiðar, sem dregur aðra bifreið, gildir almennt ekki, þá er einsætt, að um skaðabótaábyrgðina skal fara eftir almennum reglum, eins og mælt er í 2. málsgr. 34. gr. bifrl. En almenna reglan segir, að húsbóndi beri skaðabótaábyrgð á ólógmætu og viljandi eða gálauslegu skaðaverki, sem þjónninn vinnur í