52 Tímarit lögfræðinga fmmkvæmd starfs síns. In almenna vísun 1. málsgr. 35. gr. bifrl. til ábyrgðarákvæða 34. gr. á þá hér við almennu reglurnar", samkvæmt 2. málsgr. 34. gr. sömu laga, sem hér verður þá reglan um þjónsábyrgöina". Og þá verður það athugandi, hvernig beita eigi þeirri reglu um ábyrgð bifreiðareiganda á tjóni af völdum stjórnanda dráttarbíls á dregna bílnum, farmi hans eða mönnum á honum, enda hafi eigandi eigi átt hlut að því, að drátturinn var fram- kvæmdur. 1 dómasafni hæstaréttar, sem nú er út komið, til og með 1947, hef ég ekki fundið aðrar úrlausnir um ábyrgð á tjóni í sambandi við bifreiðadrátt en þær, sem áður hafa verið nefndar. Og verður hér því ekki stuðzt við dóma um það efni, sem hér er til athugunar. Málið skýrist bezt með dæmi: A, B og C sækja kýr á bifreiðinni X úr ölfusi til Reykjavíkur. A stýrir bifreið- inni, en B og C gæta farmsins á bifreiðarpalli. Á Hellis- heiði bilar bíllinn, og verður ekki komið af stað aftur. Nú kemur M á vörubifreiðinni Y, sem er eign firmans V, og tekur að sér að draga bifreiðina X að skíðaskálanum í Hveradölum. En svo óheppilega tekst til, að bifreiðin X veltur út af veginum niður í djúpan skurð, og verða bæði meiðsl á mönnum, sem gættu kúnna, og spjöll á bifreið- inni. M hefur ekið á 2530 kílómetra hraða að minnsta kosti og ekki tekið eftir hljóðmerki, sem stjórnandi X gaf í sífellu, er hann fann, að M ók óhæfilega hart, enda var tekið að rökkva og slydduhríð nokkur. Bar firmað V skaða- bótaábyrgð á tjóni því, sem M olli? Um greiðslu fyrir dráttinn var ekkert samið. Fyrst mætti spyrja, hvort ákvæði 2. málsgr. 35. gr. bifrl. um notkun bifreiðar án heimildar eiganda ætti ekki hér við. Ef svo væri, þá hefði M verið óheimilt að nota bifreið- ina Y til þess að draga bifreiðina X. Og þá hvílir ekki skaðabótaskylda á firmanu V vegna slyssins. Samkvæmt 29. gr. bifrl. er hverjum ökumanni skylt að nema staðar og hjálpa slösuðum mönnum, en aðra hjálp eða aðstoð er öku- manni ekki lögskylt að veita samkvæmt bifreiðalögum. Ákvæði 220. gr. 1. málsgr. og 221. gr. 1. málsgr. almennra