Skaöabótaábyrgö í sambandi viö bifreiöardrátt 53 hegningarlaga mæla engum ríkari skyldu á hendur en 29. gr. bifrl. Þó að M hefði neitað að draga bifreiðina X á Hellisheiði, þá hefði honum verið það heimilt, með því að naumast gat synjun hans um bíldrátt varðað við 1. málsgr. 221. gr. hegningarlaganna. En þar af leiðir ekki, að M hefði verið óheimilt að láta bifreiðina Y draga bifreiðina X. Það má víst telja það fasta venju, að bifreiðarstjórar hjálpi hver öðrum eftir föngum á vegum úti, bæði um drátt og annað. Synjun um hjálp mundi venjulega talin ómannúðleg og brot á háttvísi í garð stéttarbræðra. Réttar- vitund almennings og sérstaklega starfandi bifreiðarstjóra mun því ekki telja bifreiðarstjóra óheimilt að taka að sér drátt á bíl, sem ekki getur komizt áfram á förnum vegi, nema þá ef einhver alveg sérstök hætta er drætti samfara. En venjulega er langt frá því, að slíkri hættu sé til að dreifa, ef báðir bifreiðarstjórarnir sýna nauðsynlega gætni. Eina tjónið, sem dráttur venjulega veldur, er lítils háttar ferðatöf dráttarbílsins. En skaðabótaskylda eiganda dráttarbíls verður þó víst ekki beinlínis leidd af heimild bifreiðarstjóra hans til þess að leggja bilinn í dráttinn. Engin mótsögn er í því að heimila bifreiðarstjóra að draga annan bíl og að mæla eig- anda dráttarbíls undan skaðabótaábyrgð á tjóni, sem drátt- arbílstjórinn veldur. Eiganda báts, sem tekinn er að hon- um fornspurðum til þess að bjarga bát þriðja manns, er óskylt að bæta tjón, sem stjórnandi bátsins veldur með árekstri á þann bát, sem bjarga skal. Hagræði það, sem greiðasemi bifreiðarstjóra og stjórnanda bátsins í dæminu er þjóðfélagslega meira virði en sú hætta, sem dráttarbíll eða bjargskip er lagt í vegna dráttarins eða björgunar- innar. Og því er réttmætt að leyfa að taka bátinn og nota bílinn í því skyni. En þá verður að lokum athugandi, hvort bíleigandi veroi ekki ábyrgur samkvæmt reglunni um þjónsábyrgS. Ef drátturinn er þáttur í björgun slasaðra manna eða manna, sem staddir eru í lífsháska, þá er lögskylt að veita hjálp- ina. Ef t. d. bifreiðin X ekur á fjallvegi langt frá byggð