Málameðfero i htestarétti 55 stjórnandi hennar veldur í drættinum, hlýtur að fara eftir reglunni um þjónsábyrgð, enda kemur sönnunarregla 1. málsgr. 34. gr. bifrl. hér ekki til greina. Ef stjórnandi er jafnframt eigandi, þá ber hann ábyrgð á tjóni, sem hann vinnur, samkvæmt almennu skaðabótareglunni. E. A. Málameðferð í hæstarétti Dómendur hæstaréttar hafa sent hæstaréttarlögmönn- um svolátandi bréf: Árið 1951, miðvikudaginn 24. janúar, komu dómendur Hæstaréttar saman í dómhúsinu við Lindargötu. Sam- þykkt var að senda hæstaréttarlögmönnum svolátandi bréf: Frá því 1. október 1950 og til miðs janúar 1951 hefur meðferð alfs 16 mála, bæði einkamála og opinberra mála, tafizt fyrir Hæstarétti, þar sem Hæstiréttur hefur orðið að fresta munnlegum flutningi mála, er ákveðinn hafði verið flutningur þeirra, stöðva flutning mála, áður en honum var lokið, eða fresta uppsögu dóms í málum vegna þess, að öflun gagna var svo ábótavant, að ekki var viðhlít- andi að leggja dóm á þau án frekari gagnasöfnunar, ef um einkamál var að tefla, eða rækilegrar rannsóknar, er á- kæruvaldið átti aðild. En á þeim tíma, er meðferð þessara 16 mála tafðist fyrir Hæstarétti, voru þar tekin til flutnings alls 54 mál. Það má ljóst vera, að störf Hæstaréttar vaxa úr hófi fram og allri afgreiðslu mála seinkar þar mjög, ef Hæsti- réttur verður að segja að töluverðu leyti fyrir um gagna- söfnun einkamála, sem er hlutverk málflytjenda og lög gera ráð fyrir, að lokið sé að jafnaði, áður en héraðsdóm- ur gengur.