56 Tvniarit lögfræbinga Sama er að segja um töf opinberra mál-a í Hæstarétti vegna ófullnægjandi rannsóknar þeirra, enda er það hlut- verk ákæruvalds, þar á meðal sækjanda í Hæstarétti, að hlutast tíl um rækilega rannsókn þeirra mála. Sækjanda opinbers máls er því rétt og skylt að annast um framhalds- rannsókn opinbers máls af sjálfsdáðum og i samráði við dómsmálaráðuneytið, ef slíkrar rannsóknar er þörf, áður en mál er tekið til meðferðar í Hæstarétti. 1 því skyni að ráða bót á þeirri tilhögun, sem nú er, er því beint til málflytjenda fyrir Hæstarétti, að þeir undir- riti yfirlýsingu samhljóða þeirri, sem hér fylgir, um leið og þeir afhenda Hæstarétti ágrip málsskjala í þeim mál- um, sem þeir hyggjast flytja þar eða eru skipaðir til að flytja þar. Þess er vænzt að málflytjendur vandi til ágripsgerðar og raði skjölum á þann hátt, er hagkvæmast má telja, setji svör vitna í beinu framhaldi vitnaspurninga, eftir því sem unnt er, og setji ódagsett skjöl þar, sem ætla má að þau eigi heima. Nauðsynlegt er, að ágrip séu vel læsUeg. Þess er óskað, að samin sé og send Hæstarétti ásamt ágripi skrá um aðiljaskýrslur, vitni, vottorð og einkennistölur héraðsdómsskjala, sem í ágripi eru, þar sem vísað sé til blaðsíðutals í ágripi. Sleppa má skrá þessari, ef um lítil ágrip er að ræða. Gizur Bergsteinsson Þórður Eyjólfsson Jón Ásbjömsson Ólafur Lárusson Árni Tryggvason."1) Yfirlýsing sú, er hæstaréttarlögmenn skulu undirrita og láta fylgja ágripi málsskjala hljóðar svo: Hér með er Hæstarétti sent ágrip málsskjala í hæsta- réttarmálinu nr..................................... Jafnframt er því lýst, að við höfum aflað allra þeirra gagna, sem við teljum unnt að fá málinu til skýringar." Bréf þetta á fyrst og fremst erindi til allra hæstarétt- arlögmenna. Að því leyti má ef til vill telja nauðsynjalaust i) Letri breytt hér.